Vonandi næ ég að upplifa drauminn Hjörvar Ólafsson skrifar 17. júlí 2019 11:00 Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili, tók þátt í forkeppni fyrir opna breska meistaramótið í golfi kvenna í vikunni. Þar dugði skor hennar til þess að komast áfram á lokaúrtökumótið fyrir mótið sem haldið verður fyrstu helgina í ágúst. Mynd/GSÍmyndir/Seth
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili, tók þátt í forkeppni fyrir opna breska meistaramótið í golfi kvenna í vikunni. Þar dugði skor hennar til þess að komast áfram á lokaúrtökumótið fyrir mótið sem haldið verður fyrstu helgina í ágúst. Lokaúrtökumótið fyrir opna breska meistaramótið í golfi kvenna verður haldið í Ashridge 29. júlí og opna breska fer svo fram helgina 1.–4. ágúst. Guðrún Brá Björgvinsdóttir hefur tryggt sér farseðil á úrtökumótið. Guðrún Brá hefur ekki áður komist svona langt í ferlinu en hún spilaði á opna breska í flokki áhugamanna fyrir nokkrum árum. Hún er mjög ánægð með að vera komin á þann stað að opna breska meistaramótið sé raunhæfur möguleiki og hlakkar mikið til verkefna komandi vikna. Fyrst ætlar hún hins vegar að hvíla lúin bein hér heima, ferðast um landið sitt og leika svo á móti á heimavelli sínum.Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingar úr Golfklúbbnum Keili, urðu Íslandsmeistarar í golfi í fyrra.Mynd/GSÍStutt stopp hér heima fyrir átökin „Það er mjög góð tilfinning að vera komin einu skrefi nær því að komast á opna breska meistaramótið sem er mót sem alla kylfinga langar að prófa einhvern tímann á ferlinum,“ segir Guðrún Brá í samtali við Fréttablaðið um þennan áfanga í átt að markmiði sínu. „Ég hafði aldrei spilað Sandy Lodge-völlinn áður og þeir kylfingar sem ég ræddi við könnuðust ekki við þennan völl. Ég renndi því alveg blint í sjóinn en náði góðum hringjum sem skiluðu mér áfram sem er frábært,“ segir hún enn fremur. „Lokaúrtökumótið er svo spilað þannig að það spila rúmlega 100 sterkir kylfingar einn 18 holu hring og ég held að það séu fjögur til fimm sæti á lokamótinu í boði. Ég hef ekki áður spilað í svona fyrirkomulagi svo ég muni en það verður bara gaman og spennandi. „Það er líka mjög skemmtilegt að kljást við aðra kylfinga eftir að spila við nánast sömu andstæðinga viku eftir viku í LET-Access-mótaröðinni. Þetta er fjölbreyttur hópur af kylfingum sem koma úr ýmsum áttum og það verður spennandi áskorun að freista þess að lenda nógu ofarlega til þess að komast alla leið.“Guðrún Brá Björgvinsdóttir.Mynd/GSÍmyndir/SethMun ráðast á dagsforminu „Þetta verður því vissulega erfitt og krefjandi verkefni en ég hef fulla trú á að mér takist að láta drauminn verða að veruleika. Klisjan um dagsform á líklega aldrei betur við en í þessu tilfelli og vonandi bara tekst mér að hitta á góðan hring,“ segir Guðrún full sjálfstrausts. „Núna er ég stödd hér heima í ferð með bandarískri vinkonu minni sem er einnig kylfingur og var með mér í háskólanum úti. Þessi vika fer bæði í slökun, að túristast aðeins og svo ætla ég taka þátt í KPMG-bikarnum um næstu helgi,“ segir hún um framhaldið. „Það er alveg nauðsynlegt að koma aðeins heim eftir keyrslu síðustu vikna, sofa aðeins í rúminu heima og sýna vinkonu minni landið. Svo skemmir það alls ekki að KPMG-bikarinn verður spilaður á Keili sem er minn heimavöllur. Þetta gæti eiginlega ekki verið betra,“ segir hún enn fremur um næstu daga og vikur.
Birtist í Fréttablaðinu Golf Mest lesið Beckham kærður í tengslum við mál Diddy Sport Umræðan væri önnur ef um Rashford væri að ræða en ekki Grealish Enski boltinn Baðst afsökunar á tæklingunni í Garðabænum Íslenski boltinn Rotaðist eftir að hafa dottið í miðju hlaupi Sport Kyssti mótherja eftir að hafa sleikt annan um daginn Sport Liverpool tilkynnir um risasamning við Adidas Enski boltinn Keane gagnrýndi Arsenal: „Hvað gerir annað sætið fyrir þig? Þú vilt vinna titla“ Enski boltinn Sjáðu markið hans Alberts gegn Napoli Fótbolti Stjórnarformaður BBC vill breytingar á Match of the Day Enski boltinn Ter Stegen nafngreinir blaðamenn og segir þá lygara Fótbolti Fleiri fréttir Tiger syrgir móður sína og sleppir Players Enn að jafna sig á fráfalli móður sinnar og óviss hvort hann keppir á Players Ryder Cup snýr aftur á Stöð 2 Sport Var í mótorhjólagengi, sat inni en er nú kominn á Opna breska Fór tvisvar sinnum holu í höggi á sama hringnum Hlógu að Tiger: Eitt það vandræðalegasta á ferlinum Tiger Woods dregur sig úr keppni á sínu eigin móti Tiger snýr aftur á PGA-mótaröðina Opna bandaríska fyrsta risamótið til að opna dyrnar fyrir LIV Tiger syrgir móður sína Sjá meira