Veist að þremur múslimskum konum Stefán Ó. Jónsson skrifar 16. júlí 2019 07:18 Lögreglan segir að veist hafi verið að þremur múslimskum konum. Vísir/Vilhelm
Lögreglan rannsakar nú hugsanlegan hatursglæp, sem tilkynnt var um í Breiðholti á sjöunda tímanum í gærkvöld. Í dagbókarfærslu lögreglunnar segir að þar hafi verið veist að þremur múslimskum konum sem staddar voru utandyra. Ekki fylgir þó sögunni hver veittist að konunum eða hvernig, aðeins að málið sé til rannsóknar. Lögreglan segir að sama skapi að brugðist hafi verið við 50 tilkynningum frá klukkan 17 í gær til 05 í morgun. Til að mynda hafi verið höfð afskipti af „betlara“ sem sagður er hafa brugðist „illa við ef hann var hunsaður.“ Gangandi vegfarendur hafi kvartað undan áreiti og ógnun og hafi lögreglan því vísað manninum burt. Jafnframt var eitthvað um skemmdarverk í gærkvöldi. Tilkynnt var um rúðubrot í Árbæjarskóla á sjöunda tímanum og þá var kveikt í ruslagámi við Rimaskóla skömmu fyrir klukkan 23. Kallað var á slökkvilið sem réði niðurlögum eldsins. Þá segir lögreglan að nokkrar tilkynningar hafi borist vegna ölvaðs fólks í miðbænum. „Fólkið var ýmist vakið, vísað frá eða ekið heim til sín,“ eins og það er orðað í dagbók lögreglu.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Innlent Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Innlent Dró til sín fé sem gjaldkeri framboðsins Innlent Reyndist fangi undir rafrænu eftirliti Innlent Hátt á þriðju milljón á mánuði Innlent Pálmi fékk kröfum Bríetar vísað frá að mestu Innlent „Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu“ Innlent Segir ekkert eiga að koma í veg fyrir að Airbus noti Reykjavík Innlent Mátti ekki kalla dómarann „lausláta mellu“ Innlent Án ökuréttinda og óhæfur til aksturs þegar banaslysið varð Innlent Fleiri fréttir Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Dró til sín fé sem gjaldkeri framboðsins Reyndist fangi undir rafrænu eftirliti Hundruð sitja um störfin, íslenskur bíll og Hildur Guðna í beinni Segir ekkert eiga að koma í veg fyrir að Airbus noti Reykjavík Rannsaka líkamsárás gegn unglingsstúlku Pálmi fékk kröfum Bríetar vísað frá að mestu Mótmæli við Austurvöll Vill leysa flöskuhálsinn í raforkumálum Vestfjarða með lagabreytingu Hátt á þriðju milljón á mánuði Án ökuréttinda og óhæfur til aksturs þegar banaslysið varð Livio skylt að greiða Ingunni 25 milljónir Lækka bílastæðagjöld við Seljalandsfoss Mótmælendur í Skuggasundi fá ekki krónu Sættust um bikbreiðuna Búvörusamningar framlengdir um ár Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys á Lækjargötu Of seint að Jónas fái að hvíla í friði Manndrápstilraun í bílakjallara á borði héraðssaksóknara Mótmæla fyrirhugaðri brottfararstöð „Ávallt komið skýrt fram“ að ekki sé um að ræða fasta búsetu „Auðvitað stendur valdaklíkan saman“ Þingmenn sem hætta og hagræðing í skötulíki „Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu“ „Siðareglurnar bara enn eitt leikritið af hálfu þessarar ríkisstjórnar“ Hættir halal-slátrun eftir hringingar og haturspósta Lögsækja Reykjavíkurborg Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Ingu Daggar Mátti ekki kalla dómarann „lausláta mellu“ Sjá meira