Níu særðir í skógareldum í Portúgal Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 21. júlí 2019 15:07 Skógareldar á Spáni árið 2012. Myndin tengist fréttinni ekki beint. AFP
Skógareldar brutust út á þremur stöðum í Castelo Branco héraðinu í Portúgal í gær. Í kring um þúsund slökkviliðsmenn berjast nú við það að reyna að slökkva þá en níu manns hafa slasast vegna þeirra. Castelo Branco er um 200 km norðaustan af Lissabon, höfuðborg Portúgal. Einn þeirra sem særðist hefur verið fluttur á sjúkrahús í Lissabon en hann var alvarlega slasaður. Hann er sá eini þeirra særðu sem er almennur borgari en hinir eru allir slökkviliðsmenn. Lokað hefur verið umferð vegna eldanna og hefur eitt þorp verið rýmt. Í gær var reynt að slökkva eldana úr lofti en það tókst ekki og heldur slökkvistarfið áfram í dag. Enn er notast við flugvélar og eru hundruð slökkviliðsbíla á svæðinu. Herinn hefur einnig verið kallaður út til að aðstoða slökkvilið við að fá greiðari aðgang að eldinum. Einn íbúanna á svæðinu sagði að eldarnir hafi verið ágengir og að íbúarnir hafi þurft að reyna að slökkva eldana sjálfir. Ekki hafi verið nógu margir slökkviliðsmenn. Þetta eru fyrstu stóru skógareldarnir í Portúgal í ár en fyrir tveimur árum dóu 106 manns og voru það mannskæðustu skógareldar þar í landi í manna minnum.
Portúgal Skógareldar Skógareldar í Portúgal Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Flugferðum aflýst Innlent Brást of harkalega við dyraati Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman Innlent „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Innlent Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Erlent Fleiri fréttir Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Ætla að birta Gaetz-skýrsluna eftir allt saman Sjá meira