Daníel Leó og Hólmbert á skotskónum en Hjörtur sá rautt Anton Ingi Leifsson skrifar 11. ágúst 2019 18:05 Hjörtur í leik með Bröndby. vísir/getty
Hjörtur Hermannsson var sendur í snemmbúna sturtu er hann fékk rautt spjald í 2-0 sigri Bröndby á Hobro í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Pólverjinn Kamil Wilczek skoraði bæði mörk Bröndby, það fyrra á 52. mínútu og það síðara á 85. mínútu, en Hjörtur fékk sitt annað gula spjald í uppbótatímanum. Bröndby er í þriðja sæti deildarinnar með tíu stig, fimm stigum á eftir toppliðunum FCK og Midtyjlland. Hörður Björgvin Magnússon stóð vaktina í vörn CSKA Moskvu sem gerði markalaust jafntefli við PFC Sochi í Rússlandi. Arnór Sigurðsson fór meiddur af velli eftir 29 mínútur en CSKA er í 2. sætinu. Daníel Leó Grétarsson og Hólmbert Aron Friðjónsson skoruðu sitt hvort markið í 3-1 sigri Álasund á Strömmen í norsku B-deildinni í dag. Álasund er eftir sigurinn með sjö stiga forskot á toppnum. Daníel Leó, Hólmbert Aron, Aron Elís Þrándarson og Davíð Kristján Ólafsson spiluðu allir fjórir allan leikinn fyrir Álasund. Guðmundur Þórarinsson spilaði allan leikinn fyrir Norrköping sem vann 2-0 sigur á Elfsborg á heimavelli. Norrköping er í 7. sæti deildarinnar með 31 stig. Samúel Kári Friðjónsson spilaði fyrir Víking sem tapaði 2-1 fyrir Bodo/Glimt á útivelli en Víking er í 9. sæti deildarinnar.
Norski boltinn Rússneski boltinn Sænski boltinn Mest lesið „Geðveikt að sjá þennan bláa vegg“ Handbolti Gæti enn allt farið fjandans til með fjögurra marka tapi Handbolti Sér eftir því sem hann sagði Enski boltinn „Aron er betri handboltamaður en Óli Stef“ Handbolti Myndasyrpa frá sigrinum sem kom Íslandi einu skrefi nær átta liða úrslitum Handbolti HM í dag: Þetta er heimsklassa lið Handbolti Hrósuðu Viggó í hástert: „Hann er svo verðmætur“ Handbolti „Slakiði á maður, eru þið ruglaðir?“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Egyptalandi: Nokkrir með fullt hús Handbolti „Þurfum að halda okkur á jörðinni“ Handbolti Fleiri fréttir Segir Betu vera brjálæðing en á jákvæðan hátt Betlaði einu sinni mat á götunni en er nú hetja Barcelona Haaland fær tíu milljarða hjálp Mörkin úr Meistaradeildinni í gærkvöldi: Sjáðu hrunið hjá Man. City Íslendingarnir orðnir fjórir hjá Kristianstad Kusu að henda út myndbandsdómgæslu Sér eftir því sem hann sagði Feyenoord pakkaði Bayern saman Brest mátti þola tap í Þýskalandi Þægilegt hjá Skyttunum Man City glutraði niður tveggja marka forystu Landsliðsþjálfarinn Arnar var í stúkunni þegar Hákon mætti á Anfield Cole Palmer er stolt lítillar þjóðar í Karabíska hafinu „Held ég hafi þurft á því að halda“ Ætlar að taka annað fótboltasumar á „besta staðnum á Íslandi“ Mannvirkjasjóður KSÍ fer næstu árin í uppbyggingu á Laugardalsvelli Sjáðu markaveislu Barcelona, Hákon búa til mark á Anfield og öll hin mörkin í gær Dortmund rak þjálfarann sinn eftir tapið í gær Slagsmál í leikmannagöngunum eftir sigur Barcelona í gær Táningur handtekinn vegna ummæla í garð Havertz og eiginkonu hans Tók brjálæðiskast í klefanum hjá Man. Utd Chelsea að gera Naomi Girma að dýrasta leikmanni sögunnar Magnaður endurkomusigur Atlético Madríd Jón Daði skoraði í fyrsta sigurleik Burton á árinu Monaco með mikilvægan sigur á Aston Villa Ótrúleg endurkoma Börsunga Torsóttur sigur toppliðsins Grealish eftirsóttur: Færir hann sig um set í Manchester? KSÍ boðar unga varnarmenn á séræfingar Hefur skoðanir á því hvar Arnar eigi að hefjast handa með landsliðið Sjá meira