Swansea keyrði yfir Birmingham í seinni hálfleik Arnar Geir Halldórsson skrifar 25. ágúst 2019 13:00 Borja Baston í baráttunni í dag. vísir/getty Swansea fékk Birmingham í heimsókn í fyrsta leik dagsins í ensku B-deildinni í knattspyrnu í dag en bæði lið höfðu byrjað mótið nokkuð vel og var því búist við hörkuslag. Fyrri hálfleikur var markalus en fjör fór að færast í leikana eftir ríflega klukkutíma leik. Kyle Naughton kom Swansea á bragðið á 63.mínútu og Bersant Celina tvöfaldaði forystuna skömmu síðar. Spænski sóknarmaðurinn Borja Baston gerði svo endanlega út um leikinn á 75.mínútu. 3-0 sigur Swansea staðreynd og er liðið enn taplaust eftir fyrstu fimm umferðir deildairnnar. Svanirnir hafa 13 stig og sitja í 2.sæti deildarinnar á lakari markatölu en topplið Leeds sem er sömuleiðis með 13 stig. Enski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti