Fyrirliðinn tryggði Juventus sigur í upphafsleiknum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. ágúst 2019 18:00 Chiellini fagnar með Leonardo Bonucci. vísir/getty Juventus vann 0-1 sigur á Parma í upphafsleik ítölsku úrvalsdeildarinnar í dag. Giorgio Chiellini, fyrirliði Juventus, skoraði eina mark leiksins á 21. mínútu. Hann stýrði þá skoti Alex Sandro í netið. Á 35. mínútu skoraði Cristiano Ronaldo en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Portúgalinn var lítt hrifinn af þeirri ákvörðun. Luigi Sepe, markvörður Parma, varði svo tvisvar vel frá Ronaldo í seinni hálfleik. Maurizio Sarri stýrði Juventus ekki í dag en hann glímir við lungnabólgu. Matthijs de Ligt, sem Juventus keypti frá Ajax í sumar, sat allan tímann á varamannabekknum sem og Paolo Dybala og Mario Mandzukic. Juventus hefur orðið ítalskur meistari átta sinnum í röð. Ítalski boltinn