Herdís snýr sér að rekstri á Reykjalundi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. ágúst 2019 10:21 Herdís Gunnarsdóttir var forstjóri Heilbrigðisstofununar Suðurlands frá árinu 2014 en hún stýrir stofnuninni til 30. september.
Herdís Gunnarsdóttir, fráfarandi forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri endurhæfingarsviðs Reykjalundar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjalundi. „Herdís hefur margþætta reynslu af rekstri og stjórnun í heilbrigðiskerfinu. Hún var forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands frá 2014 en HSU er ein stærsta heilbrigðisstofnun landsins með 500 starfmenn á 10 starfsstöðvum.“ segir í tilkynningu frá Reykjalundi. Herdís lauk BSc-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1993 og meistaraprófi í hjúkrun frá sama skóla árið 2001. Árið 2009 lauk Herdís MBA-prófi frá viðskipta- og hagfræðideild HÍ. Áður vann hún um árabil að margvíslegum verkefnum á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi, m.a. sem verkefnastjóri og klínískur ráðgjafi hjá stjórn heilbrigðis- og upplýsingatæknideildar, verkefnastjóri á þróunarskrifstofu framkvæmdastjóra hjúkrunar, verkefnastjóri mannauðs- og gæðamála hjá Barnaspítala Hringsins og sem hjúkrunardeildarstjóri á barnaskurðdeild og dagdeild. Hún hefur verið klínískur lektor við hjúkrunarfræðideild HÍ frá 2014. „Það er mikill fengur fyrir Reykjalund að fá Herdísi í forystusveit okkar. Umfangsmikil reynsla hennar af rekstri og stjórnun heilbrigðisstofnana auk djúprar sérfræðiþekkingar mun nýtast við áframhaldandi faglega og þjónustulega uppbyggingu Reykjalundar á næstu árum,“ segir Birgir Gunnarsson, forstjóri Reykjalundar. Herdís tekur við starfinu þann 1. október en degi fyrr lýkur hún störfum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.Fréttin var uppfærð klukkan 12:46.
Heilbrigðismál Mosfellsbær Vistaskipti Mest lesið Pipar/TBWA með flesta Lúðra Viðskipti innlent Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Atvinnulíf Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Samstarf Skipti ekki máli hvaðan olían er Viðskipti innlent Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Viðskipti innlent Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Neytendur Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Samstarf Hildur fer frá Hörpu til KPMG Viðskipti innlent Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Neytendur Fleiri fréttir Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Sjá meira