Krossfesting á öllum betri jólasýningum Steingerður Sonja Þórisdóttir skrifar 4. september 2019 07:45 Rapparinn Emmsjé Gauti var krossfestur í gervi Jesú fyrir ári og engin leið er að vita upp á hverju hann tekur í ár.
Það kemur í raun okkur sjálfum á óvart að vera nú að halda þessa tónleikaröð í þriðja skiptið. Hugmyndin kviknaði sem algjört grín, að halda rapptónleika en hafa jólaplakat. Síðan þegar leið á grínið fórum við að taka þessu alltaf meira og meira alvarlega,“ segir Gauti Þeyr Másson, sem flestir þekkja sem Emmsjé Gauta. Hann segir þá Frey Árnason, sem stendur að tónleikunum með honum, hafa smitast af einhverjum jólaanda. „Þannig að það helltist yfir okkur einhver heilagur jólaandi. Það sama má segja um þau sem hafa tekið þátt í þessu með okkur, þau hafa öll smitast af einhverri jólagleði.“Síbreytilegur jólasöngleikur Tónleikarnir sprengdu af sé húsnæðið strax fyrsta árið, en þá voru þeir haldnir í Gamla bíói. „Þá ætluðum við fyrst að halda bara eina sýningu en enduðum með sjö pakkaðar sýningar. Þannig að við áttuðum okkur fljótt á því að við þyrftum að færa og stækka við okkur. Á síðasta ári voru tónleikarnir því haldnir í Háskólabíói þar sem þeir verða aftur í ár.“ Gauti ítrekar að þetta sé ekki einungis hans sýning, heldur allra þeirra sem koma fram með honum og taka þátt. „Við Freyr sjáum vissulega um þetta, en það er fyrst og fremst samspil þeirra listamanna sem koma fram sem gerir sýninguna frábæra. Á köflum er þetta meira eins og leiksýning eiginlega, mjög súr jólasöngleikur, þar sem handritið breytist jafnvel meðan sýningin er í gangi,“ segir Gauti. Þótt hann segi sýninguna vera síbreytilega mælir Gauti ekki með því að fólk kaupi sér miða á alla tónleikana. „Ef ég tek bara sem dæmi þá voru fyrstu tónleikarnir fyrir þremur árum allt öðruvísi en þeir sjöundu. Ég mæli samt gegn því að fólk kaupi miða á allar sýningarnar, það væri fjárhagslega mjög léleg ákvörðun og gæti sett heimilisbókhaldið gjörsamlega á hvolf. Ef þú kaupir miða aftur og aftur þá áttu við eitthvert vandamál að stríða,“ segir Gauti hlæjandi.Í ár koma fram ásamt Gauta þau Aron Can, Salka Sól, Ragga Gísla, Páll Óskar, Bríet og Friðrik Dór.Leynigesturinn sprengir skalann Hann mælir þó klárlega með því að fólk mæti allavega einu sinni, enda eru engir aukvisar sem koma fram á tónleikunum í ár. „Aron Can og Salka Sól eru aftur með mér í ár, þau hafa verið með í öllum sýningum til þessa. En fyrir utan þau tvö reynum við að stokka þetta aðeins upp og gera eitthvað nýtt og öðruvísi. Ásamt þeim koma svo fram Ragga Gísla, Bríet, Páll Óskar og Friðrik Dór.“ Gauti segir að leynigesturinn eigi svo eftir að sprengja skalann, en honum sé stranglega bannað að gefa upp hver það sé í bili. „Sýningin breytist mikið frá ári til árs, þú ert ekki að fara að borga þig inn á sömu tónleika og í fyrra. Sviðsetningin er önnur og við gefum ekki upp strax hvað gerist í ár, en í fyrra fæddist Jesúbarnið til dæmis og var að lokum krossfest. Eru ekki krossfestingar á öllum betri jólasýningum?“Aldrei farið á jólatónleika Hann segir þó líklegt að hinn heilagi andi láti sjá sig líkt og á síðasta ári. „Þó ég segi sjálfur frá þá eru þetta skemmtilegustu jólatónleikar sem ég hef farið á. Ég hef reyndar aldrei farið á jólatónleika, þannig að ég er ekki með neitt sérstaklega gott viðmið. En við erum mikið að vinna með hugtakið „What would Bó do?“. Ef Bó er með hatt, þá er ég með hatt,“ segir Gauti. Hann segir það mikilvægt að eiga fyrirmyndir í þessu sem og annars staðar, og þar sé Björgvin Halldórsson fremstur á meðal jafningja. Hann hafi fundið upp hjólið undir jólatónleikaleikunum. „Og til hvers að finna upp hjólið aftur, þegar þú getur bara sett svartar felgur á það?“ segir Gauti . Miðar á sýningarnar seldust hratt upp í fyrra, en hægt er að nálgast miða á tónleikana í ár á tix.is frá og með morgundeginum.
Birtist í Fréttablaðinu Jól Jólalög Mest lesið Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Sjá meira