Suarez hetja Barcelona Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 2. október 2019 21:15 Luis Suarez vísir/getty Luis Suarez skoraði bæði mörk Barcelona í endurkomusigri á Inter í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Lautaro Martinez kom Inter yfir strax á annari mínútu leiksins og var hann nálægt því að bæta öðru marki við en Marc-Andre ter Stegen sá við honum. Suarez jafnaði fyrir Barcelona í seinni hálfleik og bætti svo sigurmarkinu við undir lok leiksins. Lionel Messi lagði upp markið. Þessi mörk voru þau fyrstu sem Suarez skoraði í Meistaradeildinni í meira en þrjú ár. Barcelona er með fjögur stig í riðlinum líkt og Dortmund. Meistaradeild Evrópu
Uppgjörið: Ármann-Stjarnan 88-90 | Orri með sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok Körfubolti
Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Fyrrum Valsarinn vann Inter, Gordon setti fernu og Madrídingar molnuðu
Uppgjörið: Ármann-Stjarnan 88-90 | Orri með sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok Körfubolti