Tíðindalitlir tveir dagar í veðrinu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. nóvember 2019 07:52 Miðað við spána ætti að viðra ágætlega til útivistar í dag og á morgun. vísir/vilhelm
Næstu tveir dagar verða tíðindalitlir í veðrinu að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Í dag er þannig útlit fyrir hæga austlæga átt á landinu. Víðast hvar verður úrkomulaust og nokkuð bjart veður þegar líður á daginn. Þó mun hann aðeins blása með suðurströndinni, kringum tíu metra á sekúndu og á með éljum. Yfir daginn skríður hitinn yfir frostmarkið með suður- og vesturströndinni, annars er frost á landinu og nær það á sumum stöðum tveggja stafa tölu. Í nótt var kaldast á Sauðarárkróksflugvelli þar sem það mældist 13 stiga frost. Á morgun er síðan fremur rólegur vindur í kortunum og suðlægari átt. Líkur á dálitlum éljum á víð og dreif en norðaustan til á landinu verður léttskýjað. „Af ofansögðu má vera ljóst að næstu tveir dagar eru tíðindalitlir í veðrinu. Það breytist á föstudaginn, þá er útlit fyrir að gangi í hvassa suðaustan- og austanátt sunnan til á landinu. Með fylgir rigning eða slydda á láglendi, en snjókoma til fjalla. Á norðanverðu landinu verður hins vegar þurrt og hægari vindur. Hitatölurnar þokast uppávið með hvassviðrinu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.Veðurhorfur á landinu:Hæg austlæg átt, úrkomulaust að kalla og birtir allvíða til með deginum. Austan 8-13 m/s og él syðst á landinu.Suðlæg eða breytileg átt 3-8 á morgun og dálítil él á víð og dreif, en léttskýjað norðaustanlands. Bætir í vind vestast annað kvöld.Frostlaust að deginum við suður- og vesturströndina, annars frost 0 til 10 stig, kaldast fyrir norðan.Á fimmtudag:Suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og dálítil él á víð og dreif, en léttskýjað norðaustantil á landinu. Frost 0 til 10 stig, kaldast á Norðausturlandi, en frostlaust við suður- og vesturströndina að deginum.Á föstudag:Gengur í suðaustan og austan 15-23 á sunnanverðu landinu með rigningu eða slyddu á láglendi. Hiti 1 til 5 stig. Hægari vindur norðantil, þurrt og minnkandi frost.Á laugardag:Austan 10-18, hvassast á Suðausturlandi. Rigning eða slydda á láglendi sunnan- og austanlands, en þurrt á Norður- og Vesturlandi. Hiti 0 til 5 stig.Á sunnudag og mánudag:Suðaustan- og austanátt og rigning eða slydda með köflum, en þurrt norðanlands. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira