Innlent

Karl­maður um þrí­tugt játar rúðu­brot á Sel­tjarnar­nesi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Rúður voru brotnar í fjölda bíla.
Rúður voru brotnar í fjölda bíla. Vísir/Anton Brink

Karlmaður um þrítugt hefur játað að hafa brotið rúður í fjölda bíla aðfaranótt mánudags á Seltjarnarnesi. Í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að málið sé nú upplýst og rannsókn lokið.

Greint var frá því á mánudag að bílrúður hefðu verið brotnar í um þrjátíu bifreiðum við Nesveg, Kirkjubraut og Austurströnd. Ýmist var búið að brjóta eina eða tvær rúður í bílunum.

„Lögreglan þakkar fyrir veitta aðstoð, en henni bárust margar ábendingar við rannsókn málsins,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði fyrr í vikunni tjónið líklega hlaupa á milljónum.

Rætt var einnig á mánudag á Vísi við Magnús Benediktsson, forseta bæjarstjórnar á Seltjarnarnesi, og eiginkonu hans Hildi Sif Hilmarsdóttur sem vöknuðu í morgun við skilaboð frá nágranna sínum um að búið væri að brjóta rúður á bílum við heimili þeirra.


Tengdar fréttir

Ábendingar borist um skemmdarverkin

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa borist ábendingar varðandi skemmdarverk á ökutækjum á Seltjarnarnesi sem framin voru í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×