Enn einn leikurinn sem Juventus snýr sér í hag

Anton Ingi Leifsson skrifar
Higuain fagnar í dag.
Higuain fagnar í dag.
Juventus er með fjögurra stiga forskot á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 sigur á Atalanta í dag.

Staðan var markalaus í hálfleik en á 56. mínútu komst Atalanta yfir. Robin Gosens skoraði markið en þannig stóðu leikar þangað til á 74. mínútu.

Argentínumaðurinn Gonzalo Higuain jafnaði þá metin en Higuain var ekki hættur því átta mínútum fyrir leikslok kom hann Juventus í 2-1. Paulo Dybala bætti við þriðja markinu svo í uppbótartíma.

Juventus er með 35 stig á toppi deildarinnar en Inter er í öðru sætinu með 31 stig. Atalanta er í 5. sætinu með 22 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira