Reed: Ég er enginn svindlari Henry Birgir Gunnarsson skrifar 11. desember 2019 11:30 Reed og Tiger í Ástralíu. vísir/getty
Dramatíkin fyrir Forsetabikarinn í golfi er formlega hafin en nokkuð fast hefur verið sótt að Bandaríkjamanninum eftir að hann braut reglur síðasta föstudag. Þá var Reed að keppa á Hero World Challenge og hreyfði við sandi í glompu í æfingasveiflunni sinni. Brot sem refsað er fyrir með tveimur höggum. Einhverjir hafa viljað kalla svindlara og óska eftir því að grannt verði fylgst með Reed í Forsetabikarnum. Hann kann því illa. „Ég var ekki að reyna að laga leguna. Ef maður brýtur reglurnar óviljandi þá er maður ekki svindlari,“ sagði Reed frekar pirraður. Tiger Woods er fyrirliði bandaríska liðsins og segir að þessi uppákoma sé stormur í vatnsglasi. „Hann er frábær strákur og við ræddum þetta mál í fluginu hingað. Það var ekki langt spjall og það er enginn í okkar liði að velta sér upp úr þessu,“ sagði Tiger. Mótið hefst í Ástralíu aðra nótt og verður mótið í beinni á Stöð 2 Golf.
Golf Mest lesið Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Handbolti Varð fyrir eldingu í fótboltaleik en myndbandið er ekki fyrir viðkvæma Fótbolti Wendell Green rekinn frá Keflavík Körfubolti Köstuðu svínshöfði inn á völlinn Fótbolti Dauðvona maður kláraði heilan járnkarl Sport Vandræði utan vallar höfðu sitt að segja Körfubolti BKG kveður keppinaut: CrossFit á viðkvæmum stað Sport Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Handbolti Sextán ára undrabarnið sem minnir á Bolt Sport Tvær stórbrotnar körfur Ja Morant Körfubolti Fleiri fréttir Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira