Rúðuþurrkur fuku af í 50 metrum á sekúndu Kristín Ólafsdóttir skrifar 11. desember 2019 06:53 Björgunarsveitarmenn að störfum í gærkvöldi. Vísir/vilhelm
Viðbragðsaðilum á Suðurlandi bárust yfir 150 beiðnir um ýmiss konar aðstoð frá því að óveðrið skall yfir umdæmið í gær og þangað til rúmlega þrjú í nótt. Bjarga þurfti ferðamönnum í ógöngum og nokkrir gistu í fjöldahjálparstöðvum í umdæminu. Versta veðrið er gengið yfir vestan- og sunnanlands en rauð viðvörun er enn í gildi á Norðurlandi eystra. Á Ólafsfirði fjúka þakplötur og brak um bæinn en þar hefur ekki tekist að hindra fok vegna veðurofsa.Sjá einnig: Veðurvaktin: Aftakaveður gengur yfir landið Nú um klukkan hálf sjö eru viðvaranir enn í gildi í nær öllum landshlutum. Appelsínugulu viðvaranirnar á suðvesturhorninu, Suðurlandi, Vesturlandi og á Vestfjörðum falla þó flestar úr gildi nú í morgunsárið og fram eftir morgni. Enn er rauð viðvörun í gildi á Norðurlandi eystra, eins og áður segir, og þá er veður tekið að versna svo um munar á Suðausturlandi. Ólafsfirðingar veri á varðbergi Í tilkynningu frá lögreglu á Norðurlandi eystra sem birt var nú á sjöunda tímanum í morgun kemur fram að á Ólafsfirði hafi fokið þakplötur og brak úr tveimur húsum í nótt. Menn frá björgunarsveitinni Tindi hafi fylgst með gangi mála en ekkert geta aðhafst enn. Fólk er varað sérstaklega við fokinu og hvatt til að fara varlega í bænum. „[…] en vegna veðurofsa hefur ekki verið hægt að koma við neinum aðgerðum til að fergja húsin eða hindra fok frá þeim. Þessi hús eru við Pálsbergsgötu og hús Norlandia. Brak frá þessum byggingum hefur fokið inn á Aðalgötu, Strandgötu, Kirkjuveg, Vesturgötu og fleiri götur undan veðrinu. Björgunarsveitarmenn vilja vara sérstaklega við þessu og hvetja fólk til að vera mjög á varðbergi gagnvart þessu og alls ekki á ferðinni þar sem brak úr húsunum getur farið um.“ Tré rifnuðu upp með rótum Þá hafa viðbragðsaðilar á Suðurlandi sinnt fjölmörgum útköllum vegna óveðursins í gær og í nótt. Í tilkynningu frá lögreglu á Suðurlandi segir að búast megi við því að ekki verði opnað aftur fyrir umferð um Hellisheiði, Þrengsli, Lyngdalsheiði, Þingvallaveg og Biskupstungnabraut fyrr en líða tekur að hádegi. Fylgjast má með fréttum af vegalokunum á vef Vegagerðarinnar.Klukkan korter yfir þrjú í nótt höfðu borist yfir 150 beiðnir um ýmiss konar aðstoð á Suðurlandi. Þar má nefna að á Selfossi brotnuðu eða rifnuðu upp með rótum átta tré, hjólhýsi fauk á hliðina og lenti utan í húsi, þakplötur og þakkantar á tólf húsum losnuðu eða fuku af. Þá bárust tvær beiðnir vegna gróðurhúsa sem voru að fjúka og í þremur tilvikum þurfti að aðstoða ferðamenn sem höfðu lent í því að drepist hafði á bílum þeirra. Ferðamennirnir voru orðnir mjög kaldir og hraktir, að því er segir í tilkynningu. Í uppsveitum Árnessýslu var jafnframt svo blint að ekki sást fram fyrir vélarhlífar á bílum. Í Ragnárvallasýslu og undir Eyjafjöllum voru nokkrir ferðamenn einnig aðstoðaðir við að komast til byggða. Tólf gista í Grímsnesi Þá voru tvær fjöldahjálparstöðvar Rauða kross Íslands opnaðar, önnur á Selfossi og hin á Borg í Grímsnesi. Fjöldahjálparstöðinni á Selfossi var lokað nokkru fyrir miðnætti þar sem þeir fimm einstaklingar sem þangað komu fengu gistingu á nálægu gistiheimili. Í Grímsnesi gista hins vegar tólf ferðamenn og bíða þess að veðrið gangi niður. Undir Ingólfsfjalli fóru svo vindhviður upp í 50 m/s og áttu ökumenn sem áttu leið um Suðurlandsveg á þeim kafla í nokkrum vandræðum. Tveir bílar fuku út af veginum en engin slys urðu á fólki. Í tilkynningu segir að vindhviðurnar hafi verið svo hressilegar að báðar rúðuþurrkur á bíl sem átti leið hjá Ingólfsfjalli fuku af. Á fjórða tímanum í nótt voru flestir viðbragðsaðilar komnir í hús. Aðgerðastjórn var þá einnig í þann mund að draga sig til hlés en verður virkjuð aftur ef þörf krefur. Alls hafa um 160 einstaklingar á rúmlega fjörutíu björgunartækjum tekið þátt í viðbragðsaðgerðum á Suðurlandi vegna ofsaveðursins.
Óveður 10. og 11. desember 2019 Veður Tengdar fréttir Allt að 38 m/s sunnan við Vatnajökul á morgun Spáð er allt að 38 m/s sunnan Vatnajökuls á morgun. Þá spáir víða norðan heiða allt að 30 m/s í nótt en ekki á að vera ofankoma á Suðausturlandi og Austfjörðum. 11. desember 2019 01:12 Netverjar grínast með vonskuveður: „Ófærð season 4“ "Ófærð season 4: Pólski sendiherrann er myrtur af fagmanni. Borgin lokast útaf veðri. Andri verður að leysa málið í blindbyl og áður en því slotar. Dóttir hans skemmir fyrir og er glötuð every step of the way.“ 11. desember 2019 00:42 Ísilagðar raflínur, brotnir rafmagnsstaurar og foktjón sem ekki er hægt að sinna vegna veðurofsans Það hefur verið mikill erill hjá viðbragðsaðilum á Norðurlandi eystra í kvöld vegna ofsaveðursins sem gengið hefur yfir landið. 11. desember 2019 01:00 Sjáðu myndirnar af óveðrinu Hin svokallaða sprengilægð skall á Reykjavík um miðjan daginn í dag og voru viðbragðsaðilar kallaðir út í hin ýmsu verkefni, allt frá því að tjóðra niður grindverk sem fuku til í að bregðast við því þegar tré rifnaði upp með rótum og féll á bíla í Vesturbænum. 11. desember 2019 01:41 Mest lesið Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Innlent Fótbrotinn og févana í Afríku Innlent „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Innlent Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Erlent „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ Innlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Innlent Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Innlent Fleiri fréttir „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Einar Geir oddviti Miðflokks í Hafnarfirði Vegum lokað í kjölfar snjóflóðs í Raknadalshlíð Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ „Djöfulsins feita piggið þitt!“: Slapp með hótun sem hræddi ekki Samfylkingin og ríkisstjórnin lækka flugið Rósa vill leggja fjölmiðlanefnd niður Fótbrotinn og févana í Afríku „Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“ Um 140 íslenskir ríkisborgarar á áhrifasvæðum átakanna Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Láta alla nemendur sem mega þreyta samræmdu prófin Hádegisfréttir Bylgjunnar: Aðalspurningin hvort fleiri blandist inn í átökin „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Þau skipa lista Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Kynnir þrettán aðgerðir gegn brotastarfsemi Kæru vegna gistihýsa við þjóðgarðinn í Skaftafelli vísað frá Endurspegli aukna hörku í garð launafólks hjá Hafnarfjarðarbæ Samfylkingin mætt til leiks á Ísafirði Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Gæti orðið flughált síðdegis Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða „Þá er bara búið að skemma MR“ Fyrsti framboðslisti Viðreisnar í Ísafjarðarbæ samþykktur Sjá meira
Allt að 38 m/s sunnan við Vatnajökul á morgun Spáð er allt að 38 m/s sunnan Vatnajökuls á morgun. Þá spáir víða norðan heiða allt að 30 m/s í nótt en ekki á að vera ofankoma á Suðausturlandi og Austfjörðum. 11. desember 2019 01:12
Netverjar grínast með vonskuveður: „Ófærð season 4“ "Ófærð season 4: Pólski sendiherrann er myrtur af fagmanni. Borgin lokast útaf veðri. Andri verður að leysa málið í blindbyl og áður en því slotar. Dóttir hans skemmir fyrir og er glötuð every step of the way.“ 11. desember 2019 00:42
Ísilagðar raflínur, brotnir rafmagnsstaurar og foktjón sem ekki er hægt að sinna vegna veðurofsans Það hefur verið mikill erill hjá viðbragðsaðilum á Norðurlandi eystra í kvöld vegna ofsaveðursins sem gengið hefur yfir landið. 11. desember 2019 01:00
Sjáðu myndirnar af óveðrinu Hin svokallaða sprengilægð skall á Reykjavík um miðjan daginn í dag og voru viðbragðsaðilar kallaðir út í hin ýmsu verkefni, allt frá því að tjóðra niður grindverk sem fuku til í að bregðast við því þegar tré rifnaði upp með rótum og féll á bíla í Vesturbænum. 11. desember 2019 01:41