Enski boltinn

Gylfi byrjar fyrsta leikinn undir stjórn Ancelotti

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gylfi er á sínum stað í byrjunarliði Everton.
Gylfi er á sínum stað í byrjunarliði Everton. vísir/getty

Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Everton gegn Burnley. Þetta er fyrsti leikur Everton undir stjórn Carlos Ancelotti.

Jóhann Berg Guðmundsson er á bekknum hjá Burnley en hann hefur verið frá í tvo mánuði vegna meiðsla.

Ancelotti gerir tvær breytingar á byrjunarliði Everton frá markalausa jafnteflinu við Arsenal á laugardaginn. Seamus Coleman og Bernard koma inn fyrir Alex Iwobi og Tom Davies. Gylfi er á miðjunni hjá Everton ásamt Fabian Delph.



Sean Dyche, knattspyrnustjóri Burnley, gerir tvær breytingar á byrjunarliðinu frá 0-1 sigrinum á Burnley á laugardaginn. Jay Rodriguez og Robbie Brady koma inn fyrir Ashley Barnes og Jeff Hendrick.



Hægt verður að fylgjast með leik Everton og Burnley í beinni textalýsingu á Vísi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×