Hæg vestanátt og smáskúrir Atli Ísleifsson skrifar 6. maí 2020 07:10 Spákortið fyrir klukkan 14 í dag eins og það leit út í morgunsárið. Veðurstofan
Veðurstofan spáir fremur hægri vestanátt í dag og smáskúrir en að skýjað verði með köflum um austanvert landið. Hitinn verður á bilinu 4 til 14 stig að deginum, hlýjast á Suðausturlandi en svalast með norðausturströndinni. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að svipað veður verði á morgun en stytti upp um vestanvert landið nálægt hádegi. „Síðdegis snýst í norðan 5-10 m/s og léttir til sunnan- og vestanlands, en um norðanvert landið þykknar upp og kólnar með slydduéljum og éljum síðar um kvöldið. Útlit er fyrir að norðanáttin haldist fram á laugardag með hita að 10 stigum yfir daginn á Suður- og Vesturlandi en um og undir frostmarki norðaustantil.“ Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Vestanátt, víða 5-10 m/s um morguninn og dálitlar skúrir, en þurrt á Austfjörðum og Suðausturlandi. Hiti frá 3 stigum á Vestfjörðum, upp í 15 stig suðaustanlands. Norðlægari vindur seinnipartinn og kólnar á norðanverðu landinu með lítilsháttar slydduéljum, en léttir til á Suður- og Vesturlandi. Á föstudag: Norðan 5-13 og bjartviðri, en dálítil él norðaustantil á landinu. Hiti frá frostmarki í innsveitum norðaustanlands, upp í 10 stig á Suðurlandi. Lægir um kvöldið og frystir víða, einkum inn til landsins. Á laugardag: Hæg norðlæg átt en norðvestan 8-13 austast á landinu. Þurrt og bjart veður, en stöku él um landið austanvert. Hiti um og undir frostmarki norðaustantil, en 6 til 11 stig á Suður- og Vesturlandi að deginum. Á sunnudag: Gengur í vestan og suðvestan 8-15 m/s. Þykknar upp um vestanvert landið en víða bjartviðri austantil. Hlýnar í veðri, hiti 7 til 12 stig síðdegis. Á mánudag: Vestlæg eða breytileg átt og víða dálítil rigning. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á þriðjudag: Hæg vestlæg átt og súld með köflum, en skýjað og þurrt um norðanvert landið. Hiti 5 til 10 stig.
Veður Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Sjá meira