Erlent

Obama styður vin sinn Joe Biden

Samúel Karl Ólason skrifar
Joe Biden og Barack Obama árið 2017.
Joe Biden og Barack Obama árið 2017. AP/Susan Walsh

Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur lýst yfir stuðningi við Joe Biden. Biden var varaforseti Obama og eru þeir góðir vinir en í myndbandi sem hann birti á netinu, fór Obama yfir það sem hann taldi kosti Biden og af hverju það væri mikilvægt að kjósa hann í embætti forseta.

Obama fór einnig yfir það hvaða aðgerðir væru nauðsynlegar á næstu árum 

Biden mun hljóta tilnefningu Demókrataflokksins til kosninganna sem fara fram í nóvember en Bernie Sanders, sá eini sem var eftir gegn Biden, hætti framboði sínu í síðustu viku og hefur lýst yfir fullum stuðningi við Biden.

Í áðurnefndu myndbandi, sem sjá má hér að neðan, fór Obama yfir það hvað Biden stóð fyrir þegar Biden var varaforseti hans. Hann sagði það eina bestu ákvörðun sem hann hafi tekið að velja Biden sem varaforseta sinn.

Meðal annars sagði hann Biden hafa ítrekað staðið við bakið á miðstétt Bandaríkjanna og fátæka. 

Í yfirlýsingu Obama sagði hann einnig að heimsfaraldur nýju kórónuveirunnar hefði varpað ljósi á það hve nauðsynleg góð stjórnsýsla væri. Hún skipti miklu máli og í beinu framhaldi af því skiptu kosningar miklu máli.


Tengdar fréttir

Bernie Sanders hættir framboði sínu

Bernie Sanders hefur ákveðið að hætta þátttöku sínu í forvali Demókrataflokksins fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum í nóvember.

Demókratar fresta landsfundi sínum vegna faraldursins

Landsfundi Demókrataflokksins þar sem velja á forsetaframbjóðanda flokksins verður frestað fram í miðjan ágúst til að auka líkurnar á að hægt verði að halda hann með hefðbundnu sniði. Upphaflega átti fundurinn að fara fram í Milwaukee í júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×