Samdráttur í losun í faraldrinum sagður fordæmalaus Kjartan Kjartansson skrifar 19. maí 2020 15:54 Auðir vegir til og frá miðborg Atlanta í Bandaríkjunum. Verulega hefur dregið úr allri umferð vegna kórónuveirufaraldursins og takmarkana sem var komið á gegn honum. Það hefur dregið þónokkuð úr losun gróðurhúsalofttegunda en að öllum líkindum aðeins tímabundið. Vísir/EPA
Losun mannkynsins á gróðurhúsalofttegundum sem valda loftslagsbreytingum hrundi um sautján prósent á milli ára vegna kórónuveiruheimsfaraldursins þegar mest lét í fyrri hluta apríl samkvæmt nýrri greiningu vísindamann. Samdrátturinn er talinn verða skammvinnur og umtalsvert minni fyrir árið í heild. Flugsamgöngur hafa að miklu leyti lamast og verulega hefur dregið úr vegaumferð og ýmis konar framleiðslu vegna kórónuveirufaraldursins og takmarkana sem ríki heims hafa komið á til að hefta útbreiðslu hans. Áætlað er að fyrir vikið hafi losun á gróðurhúsalofttegundum dregist saman um meira en milljarða tonna í nýrri rannsókn hóps vísindamanna frá Global Carbon Project. Grein um rannsóknina birtist í vísindaritinu Nature Climate Change í dag. Í sumum ríkjum varð enn meiri samdráttur en þau 17% sem losunin á heimsvísu dróst saman á milli ára þegar takmarkanirnar höfðu sem mest áhrif, að sögn Washington Post. Útlit er nú fyrir að losunin dragist saman um fjögur til sjö prósent í ár borið saman við síðasta ár, allt eftir því hversu hratt efnahagslíf heimsins tekur við sér aftur að faraldrinum loknum. Gangi sú spá eftir yrði losunin í ár á pari við árið 2006. Slíkur samdráttur væri fordæmalaus þegar heildartalan er skoðuð. Hlutfallslega þarf að líta aftur til heimsstyrjaldanna og heimskreppu til að finna viðlíka samdrátt í losun. Búast má við því að losun taki hraðan kipp upp á við þegar daglegt líf færist aftur í fyrra horf eftir faraldurinn.Vísir/EPA Bendir til þess að breytt hegðun fólks dugi ekki ein og sér Varað hefur verið við því að draga þurfi hratt úr losun gróðurhúsalofttegunda ef mannkynið ætlar sér að forðast verstu afleiðingar loftslagsbreytinga. Sameinuðu þjóðirnar sögðu í skýrslu í fyrra að losun þyrfti að dragast saman um 7,6% á hverju ári frá og með þessu ári til að hægt væri að ná markmiðum Parísarsamkomulagsins um að takmarka hlýnun við 1,5-2°C á þessari öld. Jafnvel þó að fordæmalaus samdráttur verði á losun vegna faraldursins á þessu ári er ólíklegt að það hægi marktækt á hnattrænni hlýnun af völdum manna. Þrátt fyrir allt munu menn dæla tugum milljarða tonna koltvísýrings út í lofthjúpinn á þessu ári, þó að magnið verði að líkindum eitthvað minna en síðustu ár. Höfundar rannsóknarinnar í Nature spá því ennfremur að samdrátturinn í ár verði tímabundinn. Rob Jackson, prófessor við Stanford-háskóla, segir við Washington Post að eftir fjármálakreppuna árið 2008 hafi losun á heimsvísu dregist saman um 1,5% í eitt ár. Hún jókst svo um 5% strax árið eftir. „Sagan bendir til þess að þetta verði píp,“ segir Jackson. Corinne le Quéré, forstöðumaður Tyndall-loftslagsbreytingarannsóknamiðstöðvarinnar á Englandi og aðalhöfundur greinarinnar, segist hafa búast við enn meiri samdrætti í orkuframleiðslu og iðnaði en raunin hefur orðið. Losun þar virðist hafa haldið áfram eins og á sjálfstýringu þrátt fyrir heimsfaraldurinn. „Við sjáum núna að breytt hegðun ein og sér dugar ekki til,“ segir hún. Í því samhengi skipti sköpum hvernig ríkisstjórnir heims kjósi að verja fjármunum sem þær dæla nú út til að örva efnahagslífið. Sumir þjóðarleiðtogar hafa þegar gefið til kynna að hluti innspýtingarinnar verði notaður til fjárfestinga í grænni orku og innviðum.
Loftslagsmál Vísindi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Síðasti áratugur sá hlýjasti í sögunni Í nýrri skýrslu Alþjóða veðurfræðistofnunarinnar um stöðu loftslagsmálai eru staðfestar bráðabirgðaniðurstöður sem lagðar voru fram á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í desember síðastliðnum sem sýndu að árið 2019 var næst heitasta ár frá upphafi mælinga. 11. mars 2020 13:15 Rafvæðingunni ætlað að draga úr núverandi losun um 20 prósent Viljayfirlýsing um að taka í notkun háspennibúnað fyrir flutningaskip við Sundabakka og Vogabakka í Reykjavík var undirrituð við Skarfabakka í hádeginu í dag. 15. maí 2020 12:35 Rúmur hálfur milljarður aukalega í loftslagsaðgerðir Meirihluti um 550 milljóna króna aukaframlags til loftslagsmála í sérstöku tímabundnu fjárfestingaátaki ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirufaraldursins verður varið til verkefna sem tengjast orkuskiptum. Um 200 milljónir króna verða settar í kolefnisbindingarverkefni. 5. maí 2020 16:46 Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Sammála því að erfitt haust sé í vændum Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Sjá meira
Síðasti áratugur sá hlýjasti í sögunni Í nýrri skýrslu Alþjóða veðurfræðistofnunarinnar um stöðu loftslagsmálai eru staðfestar bráðabirgðaniðurstöður sem lagðar voru fram á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í desember síðastliðnum sem sýndu að árið 2019 var næst heitasta ár frá upphafi mælinga. 11. mars 2020 13:15
Rafvæðingunni ætlað að draga úr núverandi losun um 20 prósent Viljayfirlýsing um að taka í notkun háspennibúnað fyrir flutningaskip við Sundabakka og Vogabakka í Reykjavík var undirrituð við Skarfabakka í hádeginu í dag. 15. maí 2020 12:35
Rúmur hálfur milljarður aukalega í loftslagsaðgerðir Meirihluti um 550 milljóna króna aukaframlags til loftslagsmála í sérstöku tímabundnu fjárfestingaátaki ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirufaraldursins verður varið til verkefna sem tengjast orkuskiptum. Um 200 milljónir króna verða settar í kolefnisbindingarverkefni. 5. maí 2020 16:46