Vara við meiriháttar flóðbylgju í Alaska vegna bráðnandi jökuls Kjartan Kjartansson skrifar 21. maí 2020 09:00 Barry Arm-jökullinn við Vilhjálmssund í Alaska hefur hopað mikið vegna hlýnunar undanfarin ár og áratugi. Hopið hefur veikt fjallshlíðar sem gætu hrunið ofan í sundið og valdið mikilli flóðbylgju á næstu árum. Vísir/Getty
Hópur vísindamanna sem fylgist með landhræringum á norðurskautinu óttast að berghlaup úr fjallshlíð geti valdið gríðarlega stórri flóðbylgju á einu þéttbýlasta svæði Alaska á allra næstu áratugum. Aukin hætta er sögð á hamfaraskriðum og flóðbylgjum vegna hnattrænnar hlýnunar á norðurslóðum. Jöklar hopa nú hratt og sífreri bráðnar á norðurslóðum vegna áframhaldandi hnattrænnar hlýnunar af völdum manna. Hvoru tveggja skilur eftir sig óstöðugar fjallshlíðar sem geta hrunið í miklum skriðuföllum eða berghlaupum. Ef hlíðarnar standa við vötn eða sjó geta skriður úr þeim valdið flóðbylgjum. Fjórir fórust í slíkri flóðbylgju sem fylgdi miklu berghlaupi í þorpinu Nuugaatsiaq á Vestur-Grænlandi í júní árið 2017. Hlaupið féll úr snarbrattri hlíð í firðinum Karrat Isfjorden þar sem Rink-skriðjökullinn hefur hopað mikið á undanförnum áratugum. Sjá einnig: Flóðbylgjan á Grænlandi afleiðing hlýnunar og bráðnunar jökla Á Íslandi hafa tvö stór berghlaup fallið á jökla á síðastliðinni hálfri öld. Árið 1967 féll stórt berghlaup ofan Steinsholtsjökuls, sem gengur norður úr Eyjafjallajökli, og árið 2007 féll berghlaup á Morsárjökul í sunnanverðum Vatnajökli. Vísindamenn hafa fylgst grannt með Svínafellsheiði vegna sprungu sem fannst í henni. Almannavarnir vöruðu við ferðum á Svínafellsjökul sumarið 2018 vegna hættu á skriðuföllum. Húsum skolaði út í sjó þegar flóðbylgja gekk yfir þorpið Nuugaatsiaq í júní árið 2017. Fjórir þorpsbúar fórust.Arktisk kommando/Palle Lauritsen Úrkoma, jarðskjálfti eða hitabylgja gæti hleypt hlíðinni af stað Viðvörun vísindamanna í Alaska varðar hlíðar sem var áður haldið uppi af jöklinum Barry Arm við Vilhjálmssund, tæpa hundrað kílómetra austur af borginni Anchorage. Svæðið er eitt það þéttbýlasta í Alaska. Barry Arm hefur hopað mikið vegna hlýnunar jarðar undanfarin ár. Nú er svo komið að jökullinn styður aðeins við um þriðjung brattrar hlíðar sem á annan kílómetra að lengd. Vísindamennirnir vara við því að jarðskjálfti, langt úrkomutímabil eða hitabylgja sem bræddi mikinn snjó gæti valdið meiriháttar skriðuföllum úr hlíðinni sem gæti hrundið af stað ógurlegri flóðbylgju í firðinum fyrir neðan. Þetta gæti gerst hvenær sem er en mögulega færi hlíðin af stað á næstu tveimur áratugum. „Hættan eykast bara eftir því sem jökullinn hopar,“ segir Anna Liljedahl, vatnafræðingur við Woods Hole-rannsóknastofnunina í Bandaríkjunum, við New York Times. Liljedahl og félagar hennar frá fjórtán samtökum og stofnunum sem fylgjast með landhræringum á norðurskautssvæðum Norður-Ameríku á vegum bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA og Vísindasjóði Bandaríkjanna skrifuðu opið bréf þar sem þau vöruðu við hættunni. Yfirvöld í Alaska vöruðu einnig við hættu á auknum líkum á skriðu og flóðbylgju í síðustu viku, að sögn fréttasíðunnar Arctic Today. Smábátahöfnin í bænum Whittier. Flóðbylgjan gæti verið um níu metra há þegar hún næði þangað ef hlíðar við Barry Arm hrynja. Vilhjálmssund er vinsælt hjá siglingafólk og veiðimönnum.Vísir/Getty Gæti orðið tuga metra há bylgja Flóðbylgja vegna skriðu úr hlíðum við Barry Arm er talin geta náð tugum metra. Þegar hún næði til bæjarins Whittier í tæplega fimmtíu kílómetra fjarlægð væri hún enn um níu metra há og gæti valdið mikilli eyðileggingu. Stærsta skriða sem tengdist ekki eldgosi sem vitað er um í Norður-Ameríku átti sér stað í Taan-firði í suðausturhluta Alaska árið 2015. Þar hefur Tyndall-jökullinn hörfað hratt og fjallshlíð gaf skyndilega eftir. Áætlað er að um 180 milljónir tonna bergs hafi hrunið í fjörðinn. Flóðbylgjan sem myndaðist náði um 193 metra hæð í upphafi og er ein sú stærsta sem vitað er um í heiminum. Hryndi fjallshlíðin öll við Barry Arm yrði flóðbylgjan enn stærri en í Taan-firði. Tölvulíkön benda til þess að um 500 milljónir rúmmetrar bergs og jarðvegs séu bundin í hlíðinni. Ólíkt Taan-firði sem er óbyggður er Vilhjálmssund vinsælt hjá siglingarfólki, veiðimönnum og ferðamönnum. Hundruð manna gætu verið við sundið nærri Barry Arm á hverjum tíma yfir sumarið. „Þetta er í allt öðrum flokki en nokkuð sem við höfum rannsakað eftir á, hvað það áður en það gerist,“ segir Hig Higman, jarðfræðingur í Alaska. Vísindamennirnir telja nauðsynlegt að koma upp vöktunarkerfi fyrir fjallshlíðina líkt og gert hefur verið sums staðar í Noregi þar sem hætta er á skriðum og berghlaupum. Það er ekki aðeins í Alaska þar sem hætta er talin á miklum skriðum og flóðbylgjum. Hop jöklanna og bráðun sífrera samfara hnattrænni hlýnun af völdum manna er líkleg til að auka hættu á slíkum hamförum á norðurskautssvæðum Bresku Kólumbíu í Kanada, Grænlandi, í Noregi og á sumum norðlægum slóðum utan norðurskautsins.
Loftslagsmál Norðurslóðir Grænland Bandaríkin Hamfarahlýnun Mest lesið Segir menn hafa skotið á gröfumann við vinnu Innlent Henti barnungum „óþekkum“ sonum sínum í gólfið Innlent Göngumaðurinn fannst látinn Innlent Tjaldstæðadólgur hótar að sverta staðinn á netinu Innlent Kristrún segir mál sem skekið hafa Samfylkinguna ekki svarthvít Innlent Sagði hvorki unnustu sína né börn hennar verðskulda líf Innlent Fannst fyrir botni Birnudals Innlent Gámur fluttur án leyfis eiganda og öllu stolið úr honum Innlent Maðurinn fundinn en ekki hægt að segja til um ástand hans Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Sjá meira