Erlent

Samfélagsmiðlarisar ósammála um ábyrgð sína

Kjartan Kjartansson skrifar
Jack Dorsey, forstjóri Twitter, (t.v.) og Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, (t.h) eru ekki á einu máli um hvort að þeir beri einhverja ábyrgð á því að ósannindum og áróðri sé dreift á miðlum þeirra.
Jack Dorsey, forstjóri Twitter, (t.v.) og Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, (t.h) eru ekki á einu máli um hvort að þeir beri einhverja ábyrgð á því að ósannindum og áróðri sé dreift á miðlum þeirra. SAMSETT/EPA/GETTY

Forstjórar Facebook og Twitter eru ekki á einu máli um hvaða ábyrgð samfélagsmiðlarnir bera á upplýsingafalsi sem þeir eru notaðir til þess að dreifa. Hvíta húsið heldur því fram að Donald Trump Bandaríkjaforseti ætli að gefa út tilskipun um samfélagsmiðla eftir að Twitter setti fyrirvara við fullyrðingar sem hann setti fram í tísti í vikunni.

Trump forseti er í miklu uppnámi yfir því að Twitter hafi í fyrsta skipti merkt tíst hans með fyrirvara þar sem vísað var á staðreyndavöktun fjölmiðla á þriðjudag. Í tístunum fór Trump með ósannindi um tengsl póstatkvæða, sem ýmis ríki vilja gera kjósendum auðveldara að nota í kórónuveirufaraldrinum, og kosningasvika. Hélt forsetinn því meðal annars ranglega fram að Kaliforníu ætlaði að senda öllum íbúum ríkisins kjörseðil sem ætti eftir að leiða til stórfelldra kosningasvika. Aðeins kjósendur sem eru skráðir í kjörskrá fá hins vegar kjörseðil sendan.

Í kjölfarið sagði Hvíta húsið að Trump ætlaði sér að skrifa undir tilskipun um samfélagsmiðla í dag. Ekki hefur enn verð greint frá því hvað hún gæti falið í sér nákvæmlega. Óstaðfestar fregnir herma að tilskipuninni verði beint gegn lagalegri friðhelgi sem samfélagsmiðlafyrirtæki hafa notið gegn því að vera stefnt fyrir það sem notendur segja á miðlunum.

Samfélagsmiðlafyrirtæki hafa legið undir gagnrýni undanfarin ár fyrir að leyfa alls kyns áróðri og upplýsingafalsi að grassera á miðlum sínum, ekki síst í aðdraganda kosninga. Á sama tíma hafa bandarískir íhaldsmenn sakað fyrirtækin um pólitíska slagsíðu og að þagga niður í hægrimönnum.

Segir Facebook ekki „dómara sannleikans“

Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, setti ofan í við Twitter vegna ákvörðunar fyrirtækisins um að setja fyrirvara við tíst Trump í viðtali við Fox News-sjónvarpsstöðina í gær. Sagði hann að Facebook ætlaði ekki að vakta sannleiksgildi fullyrðinga bandaríska forsetans hjá sér.

„Ég hef sterka skoðun á því að Facebook ætti ekki að dómari sannleikans um allt það sem fólk segir á netinu,“ sagði Zuckerberg í viðtalinu.

Gagnrýnin virðist þó ekki hafa breytt skoðun Jack Dorsey, forstjóra Twitter, um ágæti ákvörðunarinnar um að merkja tíst Trump. Tíst forsetans hefðu getað gefið fólki þá röngu hugmynd að það þurfi ekki að skrá sig á kjörskrá til að fá að kjósa.

Í röð tísta í gærkvöldi sagði Dorsey Twitter ætlaði að halda áfram að benda á rangar eða umdeildar upplýsingar um kosningar á heimsvísu. Virtist hann svara Zuckerberg beint.

„Þetta gerir okkur ekki að „dómara sannleikans“. Markmið okkar er að setja yfirlýsingar sem stangast á í samhengi og sýna upplýsingarnar sem deilt er um þannig að fólk geti dæmt sjálft,“ tísti Dorsey sem bað fólk um að láta starfsfólk Twitter í friði þar sem það væri á endanum hann sjálfur sem bæri ábyrgð á gjörðum fyrirtækisins.


Tengdar fréttir

Trump hótar að loka samfélagsmiðlum

Ákvörðun Twitter um að setja fyrirvara við tíst Donalds Trump Bandaríkjaforseta um meint kosningasvik í gær urðu forsetanum tilefni til þess að hóta því að loka samfélagsmiðlum eða setja reglur á þá í dag. Þetta var í fyrsta skipti sem Twitter beitti slíkri merkingu á ósannindi sem Trump dreifði á miðlinum.

Trump hunsaði óskir ekkils um frið fyrir samsæriskenningum

Óskir ekkils konu sem lést af slysförum fyrir tveimur áratugum um að Donald Trump hætti að dreifa samsæriskenningum um dauða hennar féllu á dauf eyru hjá Bandaríkjaforseta, framboði hans og blaðafulltrúa Hvíta hússins í gær. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×