Fyrirliðinn tryggði Burnley stigin þrjú gegn Palace Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. júní 2020 20:55 Leikmenn Burnley fagna marki Ben Mee í kvöld. Catherine Ivill/Getty Images
Jóhann Berg Guðmundsson var enn frá vegna meiðsla er Burnley vann Southampton 0-1 á útivelli í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað enda bæði lið - þannig séð - aðeins að spila upp á heiðurinn. Hvorugt er í neinni fallhættu af viti og möguleikar á Evrópukeppni eru engir. Leikurinn bar þess merki. Fór það svo að gestirnir unnu 0-1 útisigur þökk sé marki fyrirliðans Ben Mee eftir sendingu Ashley Westwood. Burnley er nú komið upp í 8. sæti deildarinnar með 45 stig á meðan Crystal Palace er með 42 stig í 11. sæti.
Tengdar fréttir Jóhann Berg ekki í leikmannahópi Burnley í kvöld Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson missir af enn einum leiknum vegna meiðsla í kvöld. 29. júní 2020 18:45
Jóhann Berg ekki í leikmannahópi Burnley í kvöld Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson missir af enn einum leiknum vegna meiðsla í kvöld. 29. júní 2020 18:45