Southampton lagði Manchester City | Níunda tap City í deildinni Ísak Hallmundarson skrifar 5. júlí 2020 20:00 Che Adams og félagar í Southampton fagna sigurmarkinu í dag. getty/Frank Augstein Southampton sigraði Manchester City 1-0 í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Che Adams kom Dýrlingunum yfir á 16. mínútu. Það reyndist eina mark leiksins þegar uppi var staðið en City menn voru mun sterkari aðilinn í leiknum og voru með boltann 70% af leiknum. Þeir náðu þó ekki að skora og því varð niðurstaðan flottur sigur Southampton. Southampton er eftir sigurinn í kvöld formlega búið að bjarga sér frá falli og eru í fínum málum í 13. sæti deildarinnar með 43 stig. Þeir eru aðeins sex stigum frá Arsenal í 7. sætinu og eiga því enn möguleika á Evrópusæti þegar fimm umferðir eru eftir. Manchester City er áfram í öðru sæti en hafa núna tapað níu leikjum í deildinni, eitthvað sem hefur ekki gerst í langan tíma. Þeir unnu frækinn 4-0 sigur á Englandsmeisturunum í síðasta leik en eins og svo oft áður á tímabilinu ná þeir ekki að tengja saman sigra og tapa gegn liði í neðri hluta deildarinnar. Enski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti