Opnað fyrir möguleikann á að Ægisif verði að mosku Andri Eysteinsson skrifar 10. júlí 2020 13:45 Ægissif er einn mest sótti ferðamannastaður heims. Mynd/Hot toIstanbul
Tyrkneskur dómstóll hefur ákvarðað að Ægisif, helsta kennileiti Istanbúl, sem betur er þekkt sem Haga Sophia verði ekki lengur skilgreind sem safn. Með því verður hægt að ganga að kröfu tyrkneskra þjóðernissinna og trúarhópa sem óskað hafa eftir því að byggingunni verði breytt í mosku á nýjan leik. Ægisif, eða Sofíukirkjan, var byggð í tíð Austrómverska keisaradæmisins á 6. öld. Hún var helsta dómkirkja rétttrúnaðarkirkjunnar í fleiri aldir. Þegar Mikligarður, eins og norrænir menn kölluð borgina, féll í hendur Tyrkjaveldis árið 1453 voru fjórir bænaturnar reistir við kirkjuna og henni breytt í mosku. Mustafa Kemal Ataturk, stofnandi tyrkneska lýðveldisins, lét breyta Ægisif í safn árið 1934 sem laðar að sér milljónir ferðamanna árlega. Byggingin er á heimsminjaskrá UNESCO og hvöttu samtökin Tyrki til að hrófla ekki við stöðu hússins sem hefur eins og áður segir verið safn síðan fyrir seinni heimsstyrjöld.
Tyrkland Tengdar fréttir Rétttrúnaðarkirkjan mótmælir kröfu um að Ægisif verði moska Rússneska rétttrúnaðarkirkjan telur óásættanlegt ef Ægisif í Istanbúl verður breytt úr safni í mosku eins og hópur tyrkneskra þjóðernissinna og múslima gerir kröfu um. Fleiri trúar- og stjórnmálaleiðtogar hafa gagnrýnt mögulega breytinguna. 4. júlí 2020 21:28 Niðurstöðu beðið um hvort Ægisif verður breytt aftur í mosku Æðsti stjórnsýsludómstóll Tyrklands íhugar nú kröfu þjóðernissinna og trúarhópa um að Ægisif, helsta kennileiti Istanbúl, verði breytt aftur í mosku. Lögmaður tyrkneska ríkisins leggst gegn kröfunni en niðurstöðu er að vænta innan tveggja vikna. 2. júlí 2020 10:22 Mest lesið Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Innlent „Trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum“ Innlent Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Innlent Aðeins tímaspursmál hvenær kennitölur verði notaðar í stóra árás Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Krabbameinssjúkir gætu sloppið við lyfjameðferð Erlent Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Nágranni fluttur á HSS eftir bruna í Vogum Innlent Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Innlent Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Margrét Þórhildur útskrifuð af sjúkrahúsi Krabbameinssjúkir gætu sloppið við lyfjameðferð Fjórir menn komnir út úr hellinum í Laos Flugumferð stöðvuð í München vegna mögulegs drónaflugs Buckingham-höll hafi fengið tölvupósta um misferli Andrews fyrir sex árum Ísrael og Rússland á svörtum lista vegna kynferðisofbeldis í átökum Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Sjá meira
Rétttrúnaðarkirkjan mótmælir kröfu um að Ægisif verði moska Rússneska rétttrúnaðarkirkjan telur óásættanlegt ef Ægisif í Istanbúl verður breytt úr safni í mosku eins og hópur tyrkneskra þjóðernissinna og múslima gerir kröfu um. Fleiri trúar- og stjórnmálaleiðtogar hafa gagnrýnt mögulega breytinguna. 4. júlí 2020 21:28
Niðurstöðu beðið um hvort Ægisif verður breytt aftur í mosku Æðsti stjórnsýsludómstóll Tyrklands íhugar nú kröfu þjóðernissinna og trúarhópa um að Ægisif, helsta kennileiti Istanbúl, verði breytt aftur í mosku. Lögmaður tyrkneska ríkisins leggst gegn kröfunni en niðurstöðu er að vænta innan tveggja vikna. 2. júlí 2020 10:22