Þúsundir þorpa á floti í mannskæðum monsúnflóðum á Indlandi Kjartan Kjartansson skrifar 15. júlí 2020 15:51 Kona situr á bát við hús sitt sem er á floti vegna flóðanna í Chandrapur í Kamrup-héraði í Assam. Vísir/EPA
Að minnsta kosti fimmtíu manns eru látnir og fleiri en tvær milljónir manna hafa orðið fyrir áhrifum af miklum monsúnflóðum í Assam-ríki á norðaustanverðu Indlandi. Þúsundir þorpa eru á floti og auka hamfarirnar enn á erfiðleika vegna kórónuveirufaraldursins. Hátt í fimm hundruð neyðarskýli hafa verið sett upp í tuttugu héruðum fyrir fleiri en 60.000 manns. Monsúnrigningar eru árlegur viðburður í Assam en þeim fylgja flóð og aurskriður sem neyða íbúa til að flýja heimili sín. Í fyrra lentu milljónir manna á vergangi vegna mikilla flóða á Indlandi, í Nepal og Bangladess. Þá fórust hátt í hundrað manns í Assam og nágrannaríkinu Bihar. Flóðin nú hafa einnig valdið usla í Karizanga-þjóðgarðinum sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Embættismenn telja að í það minnsta 51 dýr hafi drepist en starfsmenn garðsins náð að bjarga 102. Meirihluti indverskra nashyrninga í heiminum búa í garðinum, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Monsúnrigningar eru fylgifiskar árstíðarbundinna breytinga á vindafari yfir norðanverðu Indlandshafi. Suðvestanvindar bara heitt og rakt loft yfir Indlandsskaga sem veldur úrhellisúrkomu. Úrkoman nær hámarki í lok sumarmonsúntímans, í október og nóvember, að því er segir í grein á Vísindavefnum.
Indland Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Fleiri fréttir Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Sjá meira