Lukaku bjargaði stigi fyrir Inter

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Romelu Lukaku hefur þegar tekist að rjúfa tuttugu marka múrinn á sínu fyrsta tímabili í ítölsku A-deildinni.
Romelu Lukaku hefur þegar tekist að rjúfa tuttugu marka múrinn á sínu fyrsta tímabili í ítölsku A-deildinni. VÍSIR/GETTY

Inter Milan heimsótti Roma í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld og eygði þess von að minnka forystu toppliðs Juventus niður í þrjú stig.

Hollenski varnarmaðurinn Stefan De Vrij kom Inter yfir snemma leiks en Leonardo Spinazzola jafnaði metin fyrir Rómverja á síðustu mínútu fyrri hálfleiks.

Henrikh Mkhitaryan kom Roma í forystu á 57.mínútu en á 88.mínútu fengu gestirnir vítaspyrnu.

Romelu Lukaku steig á punktinn og skoraði en fleiri urðu mörkin ekki. Lokatölur 2-2 og Inter fimm stigum frá Juventus, sem á leik til góða á morgun gegn Lazio.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira