Fyrrum Man Utd menn á skotskónum í sigri Inter

Ísak Hallmundarson skrifar
Lukaku skoraði fyrsta mark Inter í dag.
Lukaku skoraði fyrsta mark Inter í dag. getty/Claudio Villa

Inter Milan vann 3-0 sigur á Genoa í ítölsku Serie-A deildinni í kvöld.

Belginn Romelu Lukaku kom Inter yfir á 34. mínútu og var staðan 1-0 í hálfleik. Í seinni hálfleik skoraði annar fyrrum leikmaður Manchester United, Alexis Sanchez, eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Victor Moses, fyrrum leikmaður Chelsea gaf stoðsendinguna. 

Lukaku skoraði síðan þriðja mark Inter í blálokin og innsiglaði sannfærandi sigur.

Lokatölur 3-0 fyrir Inter og er liðið nú með 76 stig í 2. sæti, fjórum stigum á eftir Juventus sem á leik til góða. Inter á eftir að spila tvo leiki og Juventus þrjá, þannig Juventus þarf einn sigur til að tryggja sér titilinn. Genoa er í 17. sæti, fjórum stigum frá fallsæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira