Hlupu frá lögreglu þegar ekki var hægt að aka Vésteinn Örn Pétursson skrifar 4. ágúst 2020 06:52 Alls voru 72 mál bókuð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk í gær tilkynningu um ökumann sem talið var að gæti verið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Ökumaður og farþegi flúðu frá lögreglu þegar hún veitti bifreið þeirra eftirför. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Þar segir að tilkynning um ökumann sem hugsanlega væri undir áhrifum hefði borist. Þegar lögregla hafi komið auga á bifreiðina sem tilkynningin sneri að hafi orðið stutt eftirför þar sem ökumaður hafi ekki sinnt stöðvunarmerkjum lögreglu. Í botnlangagötu hafi síðan karl og kona hlaupið út úr bifreiðinni. Þau hafi hins vegar náðst og verið handtekin skömmu síðar. Lögregla segir að við nánari skoðun hafi komið í ljós að bifreiðin var stolin og ökumaðurinn reynst undir áhrifum vímuefna. Grímuklæddir menn létu greipar sópa Þá var tilkynnt um innbrot í ljósmyndavöruverslun í austurhluta Reykjavíkurborgar, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Grímuklæddir menn hafi þar stolið fjölda myndavéla. Lögregla er nú með málið til rannsóknar. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni voru alls 72 mál bókuð frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun. Vista þurfti þrjú í fangageymslu og fjögur voru stöðvuð grunuð um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.
Reykjavík Lögreglumál Mest lesið „Ég var svolítið bara sett til hliðar“ Innlent Þrír skotnir af leyniskyttu við byggingu ICE í Dallas Erlent Æ fleiri Íslendingar velja að eignast ekki börn Innlent „Þetta var óvenjuleg ræða“ Innlent Ákærði hálfur Íslendingur: Játaði morðið á Instagram tveimur vikum eftir það Erlent Verða bílveikari í rafbílum Innlent Drónamálið enn óupplýst: „Við erum heimskir nýgræðingar“ Erlent Framkvæmdum að ljúka á gatnamótum sem gera Árbæinga gráhærða Innlent Kimmel snéri aftur, Trump til mikillar óánægju Erlent Aðferðum svipi til þeirra hjá Quang Le Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Gervigreind og vísindamiðlun Gular viðvaranir vegna úrkomu og aukin skriðuhætta Aðferðum svipi til þeirra hjá Quang Le Leiðbeinandinn á Múlaborg í gæsluvarðhaldi í mánuð í viðbót Jarðvarmi enn mikilvægari en áður var talið Hyggst leggja af jafnlaunavottun í núverandi mynd Framkvæmdum að ljúka á gatnamótum sem gera Árbæinga gráhærða Bein útsending: Jarðhiti jafnar leikinn Látinn laus en rannsókn enn í fullum gangi „Ég var svolítið bara sett til hliðar“ Sýknudómur í máli Aðalsteins gegn Páli stendur Séra Yrsa Þórðardóttir er látin Æ fleiri Íslendingar velja að eignast ekki börn Áflog og miður farsæl eldamennska Verða bílveikari í rafbílum „Þetta var óvenjuleg ræða“ Fagnar því að sjá Pírata mælast á þingi og útilokar ekki formannsframboð Drónaflugin geti valdið mikilli röskun og miklu tjóni Tæp 68 prósent barna í 2. bekk með aldurssvarandi hæfni í lestri Holskefla í kortunum Bílslys í Laugardal „Við erum notuð sem hræðsluáróður fyrir verðandi foreldra“ „Maður er skíthræddur um að maður brenni inni“ Núverandi kvikusöfnunartímabil geti dregist á langinn Brennuvargur gengur laus, stórfjölgun krabbameina og í beinni frá Köben Þorgerður telur tilefni til að kalla saman þjóðaröryggisráð Inga eigi að kalla saman þjóðaröryggisráð þegar í stað Skólameistarar styðja ekki breytingar ráðherra Stefnir í lokað þinghald að beiðni mæðgnanna Harmsaga fjölskyldunnar ekkert einsdæmi Sjá meira