Ekkert ferðaveður á Vestfjörðum fram á þriðjudagskvöld Kjartan Kjartansson skrifar 15. mars 2020 09:29 Verst á veðrið að verða á Vestfjörðum næstu daga. Myndin er úr safni. Vísir/Samúel Karl
Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun vegna norðaustan stórhríðar á Vestfjörðum sem á að hefjast í nótt og standa fram á morgundaginn. Ekkert ferðaveður verður þar frá því í nótt og fram á þriðjudag. Gular viðvaranir taka gildi fyrir aðra landshluta á mánudagskvöld og fram á þriðjudagskvöld. Gul viðvörun vegna sunnan hríðar tók gildi fyrir Vestfirði og Breiðafjörð klukkan sjö í morgun til hádegis. Í nótt er svo búist við norðaustan stormi eða roki, 20-25 metrum á sekúndu með talsverðri snjókomu á Vestfjörðum. Varað er við miklum skafrenningi með lélegu skyggni og slæmum akstursskilyrðum. Appelsínugul viðvörun tekur gildi vegna þess klukkan fjögur í nótt og stendur til klukkan 14:00 á mánudag. Snemma kvölds á mánudag tekur svo gul viðvörun við á Vestfjörðum sem gildir til klukkan 18:00 á þriðjudag. Þá er enn gert ráð fyrir stormi eða roki og miklum skafrenningi og slæmum akstursskilyrðum. Í öðrum landshlutum taka gular viðvaranir gildi í nótt, fyrst á landinu sunnanverðu en síðar á Austurlandi og á landinu norðanverðu. Varað er við suðaustan hríð með snjókomu eða slyddu eða rigningu við sjávarmál. Búast má við lélegu skyggni, skafrenningi á heiðum og versnandi akstursskilyrðum. Viðvaranir utan Vestfjarða gilda fram á mánudagsmorgun eða hádegi eftir landshlutum.
Veður Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Innlent Fleiri fréttir Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjá meira