Stigu lykilskref í átt að björgun nashyrningategundar Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 19. janúar 2020 22:03
Fjölþjóðlegur hópur rannsakenda hefur stigið lykilskref í átt að því að bjarga undirtegund hvítra nashyrninga frá útrýmingu. Mæðgurnar Najin og Fatu standa einar eftir af sinni tegund, nyrðra afbrigði svokallaðra hvítra nashyrninga. Þær sjást í myndskeiðinu hér að ofan í Ol Pejeta-athvarfinu í Keníu ásamt nashyrningi sem ef af syðri undirtegundinni. Þangað voru þær fluttar árið 2009 í von um að þær myndu eignast afkvæmi með karldýrunum Súdan og Suni. Allt kom fyrir ekki. Suni drapst árið 2014 og Súdan 2018. Þetta þýðir að það er ekki eitt einasta karldýr eftir. Ekki bætir úr skák að hvorki Najin né Fatu getur gengið með afkvæmi. Önnur er of veikburða og hin er með sár í legi. Útrýming blasir við en hópur sérfræðinga í samstarfi við ítalska félagið Avantea, sem sérhæfir sig í erfðum og æxlun dýra, og sá meðal annars um klónun fyrsta hestsins, vinnur nú að því að bjarga þessari viðkvæmu tegund. Rannsakendurnir hafa í þrígang náð að skapa fósturvísa úr eggjum Fatu og sæði úr Súdan, sem var fryst áður en hann drapst.. Til stendur að staðgöngumóðir af syðri undirtegund hvítra nashyrninga gangi með afkvæmin og vonast er til þess að á næstu áratugum verði hægt að koma upp fimm dýra hjörð.
Dýr Kenía Umhverfismál Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira