Samúel Kári í Bundesliguna Anton Ingi Leifsson skrifar 18. janúar 2020 10:45 Samúel eftir að hafa skrifað undir samninginn. mynd/paderborn
Samúel Kári Friðjónsson hefur fært sig frá Noregi yfir til Þýskalands en hann hefur samið við Paderborn 07. Paderborn leikur í þýsku úrvalsdeildinni en liðið er á botni deildarinnar með tólf stig en Samúel Kári á að baki 8 A-landsleiki og var í HM-hópnum í Rússlandi sumarið 2018. Þrjú stig eru upp í umspilssæti um fall og fimm stig upp í Köln sem er í fimmtánda sætinu en liðið í 15. sætinu heldur sæti sínu í deildinni. Zweiter Winter-Zugang: Samuel Kari #Fridjonsson stärkt das Mittelfeld | https://t.co/Dzq3lR0uwc | #Velkominn#SCP07pic.twitter.com/nX1eGYyinU— SC Paderborn 07 (@SCPaderborn07) January 18, 2020 Keflvíkingurinn kemur til liðsins frá Vålerenga en hann var á láni frá Vålerenga hjá Viking á síðustu leiktíð þar sem hann varð meðal annars bikarmeistari. „Samúel er ungur leikmaður með mikla hæfileika. Hann hentar vel inn í okkar stíl. Það er hægt að nota hann á margan hátt á miðjunni sem er mikilvægt fyrir okkur,“ sagði Martin Przondziono, yfirmaður knattspyrnumála, hjá félaginu. Paderborn leikur við Bayer Leverkusen á morgun er Bundesligan fer aftur af stað eftir hlé. Samúel Kári er annar Íslendingurinn í Bundesligunni en Alfreð Fininbogason er á mála hjá Augsburg.
Þýski boltinn Mest lesið Tveir látnir úr sitthvorri áhöfninni í siglingakeppni í Sydney Sport Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Enski boltinn Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Enski boltinn Andri skoraði fyrir Gent í fyrsta sinn síðan í september Fótbolti Skoraði beint úr hornspyrnu eftir að United missti mann af velli Enski boltinn Butler sagður vilja burt frá Miami sem fyrst Körfubolti Dagskráin í dag: Pílan hefst aftur eftir hlé Sport Stefndi allt í sigur Chelsea en Fulham hafði aðrar hugmyndir Enski boltinn Willum í byrjunarliðinu er Birmingham tók toppsætið Enski boltinn Látnir gista líka á æfingasvæðinu Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Andri skoraði fyrir Gent í fyrsta sinn síðan í september Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Skoraði beint úr hornspyrnu eftir að United missti mann af velli Jason Daði sneri aftur í lið Grimsby og skoraði Willum í byrjunarliðinu er Birmingham tók toppsætið Slæmur skellur fyrir gestina á St. James Park Stefndi allt í sigur Chelsea en Fulham hafði aðrar hugmyndir Sáu ekki til sólar en unnu samt Hafa tvisvar áður mæst: „Gakpo er sem betur fer í mínu liði núna“ Haaland klúðraði víti og City tapaði stigum Tók „erfiðustu ákvörðun ævinnar“ og fór til Valencia Látnir gista líka á æfingasvæðinu Fimm hlutu dóm fyrir ólætin í Amsterdam Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Músaskítur í leikhúsi draumanna Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Klopp sýndi Red Bull áhuga þegar hann var enn þjálfari Liverpool Manchester United skoðar Malasíuferð strax eftir tímabilið Tækifæri að opnast fyrir Benóný hjá Stockport Inter þremur stigum frá toppnum og með leik til góða Eftirmaður Amorim strax á útleið Sjá meira