Rashford með tvö mörk í stórsigri United Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. janúar 2020 16:45 Rashford skoraði tvö mörk í dag. vísir/getty Manchester United vann öruggan sigur á Norwich City, 4-0, þegar liðin mættust á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í dag. Með sigrinum komst United upp í 5. sæti deildarinnar. Norwich er enn á botninum. Marcus Rashford kom United yfir á 27. mínútu eftir góða sendingu Juans Mata. Á 52. mínútu fiskaði Brandon Williams vítaspyrnu. Rashford fór á punktinn og skoraði sitt annað mark. Tveimur mínútum síðar skoraði Anthony Martial með skalla eftir fyrirgjöf frá Mata. Á 76. mínútu skoraði ungstirnið Mason Greenwood svo fjórða mark United, fimm mínútum eftir að hann kom inn á sem varamaður. Enski boltinn