Forsetinn greinist með beinbrunasótt Atli Ísleifsson skrifar 22. janúar 2020 14:14 Mario Abdo tók við embætti forseta Paragvæ árið 2018. epa
Beinbrunasóttarfaraldur gengur nú yfir Paragvæ í Suður-Ameríku þar sem þúsundir hafa sýkst á síðustu vikum. Hefur nú fengist staðfest að sjálfur forseti landsins, Mario Abdo, hafi einnig greinst með veikina. Julio Mazzoleni, heilbrigðisráðherra Paragvæ, greindi frá því á fréttamannafundi í dag að hinn 48 ára forseti hafi veikst í ferð til austurhluta landsins. Fékkst svo staðfest eftir að hann sneri aftur til höfuðborgarinnar Asunción að hann hafi fengið beinbrunasótt (e. dengue). Flest tilfelli beinbrunasóttar í Suður-Ameríku hafa greinst í Brasilíu og Paragvæ. Árið 2013 gekk faraldur yfir Paragvæ þar sem 250 manns létu lífið. Á vef embættis landlæknis segir að smit berist með biti moskítóflugna, en hún berst í fluguna þegar hún sýgur blóð úr sýktum öpum eða mönnum. Beinbrunasótt smitar ekki manna á milli. Helstu einkenni beinbrunahitasóttar eru höfuðverkur, bein- og liðverkir og upphleypt útbrot koma eftir nokkra daga. Sjúkdómurinn gengur oftast yfir og sjúklingurinn nær sér að fullu, en blæðandi beinbrunasótt er alvarlegri sjúkdómsmynd sem getur leitt til dauða.
Paragvæ Mest lesið „Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn“ Erlent Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Innlent Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Innlent Húsköttur á Seltjarnarnesi með fuglaflensu Innlent Útgöngubann í borginni í nótt Erlent 85 ára og situr við alla daga og tálgar fugla úr íslensku birki Innlent Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Innlent Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Innlent Árið í fyrra það heitasta frá upphafi mælinga Innlent Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Innlent Fleiri fréttir „Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn“ Útgöngubann í borginni í nótt Vörpuðu fimmtíu sprengjum á þrjú skotmörk í Jemen Trump ekki dæmdur í fangelsi Sagðir hafa greitt heimilislausum til að þykjast vera stuðningsmenn Trumps Staðfesta að 2024 var heitasta árið í mælingasögunni Sóttu sér meira en milljón ára gamlan ís á Suðurskautslandinu Óvænt skilaboð leiddu til ferðar með syni Trumps Egede biðlar til Grænlendinga um yfirvegun og samstöðu Óttast að stóriðja spilli besta stjörnuskoðunarstað jarðar Stóru eldarnir enn hömlulausir Hæstiréttur stöðvar ekki dómsuppsögu í máli Trumps Trúir ekki að Trump muni beita hervaldi Íslendingar þurfi að huga að forvörnum með auknum gróðri og skógi Fimm forsetar viðstaddir útför Carters Myndasyrpa: Að minnsta kosti tvö þúsund hús brunnin í Los Angeles Spjallaði við hæstaréttardómara rétt fyrir áfrýjun Fyrrverandi fjármálaráðherra Svíþjóðar látinn Skotbardagi við forsetahöll Tjad Líkurnar á að öfgahægrimaður verði kanslari fara vaxandi Þjóðaröryggisráðgjafi Trumps: „Þetta snýst um sjaldgæfa málma, þetta snýst um auðlindir“ „Skóli barnanna er farinn, flestar verslanir og ég veit ekki hversu mörg hús“ Eigandi vefsíðunnar í Pelicot-málinu handtekinn í Frakklandi Banna fjölmiðlum að nota full nöfn og myndir af hermönnum Eldar brenna stjórnlaust um alla Los Angeles Forstjóri OpenAI sakaður um áralangt ofbeldi gegn systur sinni Mette boðar flokksformenn á neyðarfund vegna Grænlands Stjórnlausum eldum fjölgar í LA ESB sektað fyrir að brjóta eigin persónuverndarlög Af hverju langar Trump í Grænland? Sjá meira