Matthías lék allan leikinn í svekkjandi tapi Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 17. ágúst 2020 20:44 Matthías hefur átt betri leiki. Vísir/Vålerenga
Einn leikur fór fram í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn í fremstu víglínu hjá Vålerenga er liðið tapaði 2-1 gegn Start á útivelli. Sigurmarkið kom á fjórðu mínútu uppbótartíma. Heimamenn komust yfir á 23. mínútu og þannig var staðan er flautað var til loka fyrri hálfleiks. Þannig var staðan raunar allt fram á 75. mínútu þegar gestirnir jöfnuðu metin. Stefndi í að leiknum myndi ljúka með 1-1 jafntefli en Eirik Schulze skoraði sigurmark Start þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Var flautað til leiksloka í kjölfarið og Jóhannes Þór Harðarson – þjálfari Start – gat leyft sér að fagna vel og innilega. Guðmundur Andri Tryggvason var ekki í leikmannahóp liðsins að þessu sinni. Matthías hefur átt betri leiki en samkvæmt vefsíðunni SofaScore fékk hann 6.6. í einkunn – enginn leikmaður liðsins fékk lægri einkunn. Var þetta aðeins annar sigur Start á tímabilinu en liðið er með 12 stig þegar 15 umferðum er lokið. Vålerenga hefði með sigri farið yfir Rosenborg í töflunni en liðið er sem stendur í 5. sæti með 23 stig.
Fótbolti Norski boltinn Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu Enski boltinn „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Handbolti Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Fótbolti Fleiri fréttir „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Sjá meira