Það er rólegur dagur framundan á Stöð 2 Sport, svona miðað við helgina. Það verða fjórar beinar útsendingar á Stöð 2 Sport og hliðarrásum í dag.
Það er boðið upp á stórleik í Olís deild karla þegar Afturelding heimsækir Íslandsmeistarana heim. Selfyssingar hafa ekki verið upp á sitt besta í vetur og þurfa að fara bíta frá sér áður en úrslitakeppnin hefst. Afturelding er í 3. sæti deildarinnar og getur með sigri farið upp að hlið Hauka í toppsætinu. Selfyssingar eru hins vegar í 7. sætinu, þó aðeins tveimur stigum frá Aftureldingu.
Um kvöldið verður svo Seinni bylgjan þar sem farið verður yfir síðustu umferð í bæði Olís deild karla og kvenna.
Í ítölsku úrvalsdeildinni er svo einn leikur á dagskrá en AC Milan fær Torino í heimsókn. Milan er í 10. sæti með 32 stig á meðan Torino er í því 14. með 23 stig.
Allar beinar útsendingar Stöð 2 Sport og hliðarrása má sjá hér.
Beinar útsendingar dagsins
19:15 Selfoss - Afturelding (Stöð 2 Sport)
19:35 AC Milan - Torino (Stöð 2 Sport 2)
21:15 Seinni bylgjan (Stöð 2 Sport)
22:45 Seinni bylgjan - Olís deild kvenna (Stöð 2 Sport)
Í beinni í dag: Stórleikur á Selfossi, Zlatan og Seinni bylgjan
Tengdar fréttir
Umfjöllun og viðtöl: FH - ÍR 39-28| ÍR átti engan séns í Kaplakrika
Fyrirfram var talið að leikurinn yrði jafn og spennandi en svo var ekki, FH átti ekki í neinum vandræðum með ÍR
Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Haukar 36-28 | Haukar áttu aldrei möguleika í Eyjum
Topplið Hauka virðist endanlega hafa misst flugið en liðið steinlá í Vestmannaeyjum í dag. Lokatölur 36-28 Eyjamönnum í vil sem eru nú jafnir FH og ÍR að stigum. Frekari umfjöllun og viðtöl væntanleg.