Fimm mörk í tveimur leikjum hjá Jota Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. febrúar 2020 15:57 Diego Jota hefur skorað fimm mörk í síðustu tveimur leikjum Wolves. vísir/getty Eftir þrjá leiki í röð án sigurs í ensku úrvalsdeildinni vann Wolves Norwich City, 3-0, í dag. Diego Jota skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik og í þeim seinni skoraði Raúl Jiménez þriðja mark Úlfanna. Jota skoraði þrennu í 4-0 sigri Wolves á Espanyol í Evrópudeildinni á fimmtudaginn og hefur því gert fimm mörk í síðustu tveimur leikjum. Wolves er í 8. sæti deildarinnar með 39 stig. Liðið hefur haldið hreinu í þremur leikjum í röð í efstu deild í fyrsta sinn síðan 1981. - @Wolves keep 3 successive top flight clean sheets for the first time since 1981. #WOLNOR— Gracenote Live (@GracenoteLive) February 23, 2020 Staða Norwich er afar slæm. Liðið er á botni deildarinnar með 18 stig, sjö stigum frá öruggu sæti. Enski boltinn