Barði í bíla og fór ekki að fyrirmælum lögreglu Atli Ísleifsson skrifar 22. febrúar 2020 07:07 Í dagbók lögreglu segir frá því að um klukkan 22:30 hafi verið tilkynnt um þjófnað á tölvu frá veitingahúsi við Laugaveg. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Kolbeinn Tumi
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt konu í annarlegu ástandi við veitingahús í miðborg Reykjavíkur eftir að hún hafði barið í bíla og ekki farið að fyrirmælum lögreglu. Í dagbók lögreglu segir að tilkynningin hafi borist klukkan rúmlega fjögur og var konan vistuð í fangageymslu vegna ástands síns. Um klukkan 22 hafði lögregla afskipti af pari sem hafði farið frá ógreiddum reikningi á veitingahúsi í hverfi 108 í Reykjavík. Hafði parið fengið mat og áfengi og síðan látið sig hverfa eftir að hafa farið út að reykja. Þegar þau fóru frá staðnum elti starfsfólk parið þar til lögregla kom. Í dagbók lögreglu segir einnig frá því að um klukkan 22:30 hafi verið tilkynnt um þjófnað á tölvu frá veitingahúsi við Laugaveg. Náðust myndir af geranda og var hann handtekinn síðar er lögreglumenn höfðu af honum afskipti. Maðurinn var vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu. Þá segir frá því að tilkynnt hafi verið um innbrot í hverfi 105. Hafði einhver farið inn og stolið verðmætum meðan húsráðendur voru ekki heima. Ölvun við akstur Skömmu fyrir klukkan eitt í nótt var tilkynnt um umferðaróhapp í hverfi 108. Var þar ekið á bíl og hafi ökumaðurinn farið frá vettvangi. Hann var handtekinn skömmu síðar og er hann grunaður um ölvun við akstur. Ökumaðurinn var vistaður í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar málsins. Loks segir að lögregla hafi þurft að hafa afskipti af nokkrum ökumönnum vegna aksturs undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira