Jesus skaut Man. City enn nær silfrinu 22. febrúar 2020 19:15 Gabriel Jesus og Riyad Mahrez fagna markinu sem tryggði Man. City sigurinn gegn Leicester í dag. vísir/getty Gabriel Jesus skoraði sigurmarkið þegar Manchester City vann Leicester 1-0 í slag liðanna í 2. og 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Jesus skoraði markið á 80. mínútu en það gerði hann eftir frábæran undirbúning Riyad Mahrez. Áður hafði Kasper Schmeichel varið vítaspyrnu frá Sergio Agüero eftir um klukkutíma leik. Manchester City er nú með 57 stig í 2. sæti, sjö stigum á undan Leicester en enn langt á eftir Liverpool eða 19 stigum, auk þess sem Liverpool á leik til góða við West Ham á mánudagskvöld. Enski boltinn