Að starfa í eitruðu andrúmslofti með neikvæðu fólki getur tekið á hvern sem er en algeng mistök stjórnenda geta falist í því að taka ekki á vanda sem þessum. Í rannsókn sem gerð var í Harvard árið 2018 sýndu niðurstöður hins vegar að það getur verið hverjum vinnustað mjög dýrkeypt ef ekki er gripið í taumana.
Meðal þess sem fram kom í svörum hjá um sextíu þúsund manns sem tóku þátt í rannsókninni voru eftirfarandi niðurstöður:
- Þegar andrúmsloft er neikvætt fjarlægist starfsfólk vinnustað sinn og huglæg tenging þess við vinnuna minnkar
- Tæplega helmingur starfsmanna sögðust ósjálfrátt draga úr vinnuafköstum eða minnka viðveru ef andrúmsloft vinnustaðarins er neikvætt
- 38% svarenda sögðust viljandi draga úr vandvirkni við vinnu þegar andrúmsloft er neikvætt
- Um fjórðungur svarenda viðurkenndu að láta neikvæða andrúmsloftið á vinnustaðnum bitna á viðskiptavinum
- 12% svarenda sögðust hafa hætt í starfi vegna neikvæðs andrúmslofts
Oft þarf aðeins einn aðila á vinnustað sem eitrar allt andrúmsloftið. Í rannsókninni var spurt um áhrif þess að hafa unnið með samstarfsfélaga sem viðkomandi upplifði á neikvæðan hátt. Í niðurstöðum komu m.a. eftirfarandi atriði fram:
- 80% aðspurðra sögðust upplifa kvíða yfir mögulegum dónaskap eða neikvæðri framkomu tiltekins starfsmanns
- 78% viðurkenndu að missa áhuga á vinnustaðnum vegna viðkomandi aðila
- 66% sögðu afköst sín lakari vegna viðkomandi aðila
- 63% höfðu komið sér undan vinnu til að forðast viðkomandi aðila.
En hvaða fólk er þetta?
Það fólk sem hefur neikvæð áhrif á vinnustaðinn eða samstarfsfólk sitt var flokkað í sex mismunandi hópa miðað við mismunandi karaktereinkenni:
- Samstarfsfólk sem eru meistarar í að fresta hlutunum, koma verkefnum yfir á aðra eða eru með endalausar afsakanir fyrir því að geta ekki sinnt einhverjum verkefnum
- Samstarfsfólk sem leggur annað fólk í einelti með endurtekinni neikvæðri hegðun og áreitni
- Samstarfsfólk sem baktalar og er í því að dreifa kjaftasögum
- Samstarfsfólk sem vill ekki eiga samneyti við aðra og sýnir með framkomu sinni og hegðun að þeir hafa ekki áhuga á liðsheildinni
- Tilfinningahrakið, þ.e. fólk sem segist alltaf eiga svo erfitt og talar endalaust um hvað þeim líður illa
- Samstarfsfólk sem veit allt og kann allt betur en aðrir.