Heimir Guðjóns hefur einu sinni áður náð því sem er í boði í Kaplakrika í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. september 2020 13:00 Heimir Guðjónsson er á góðri leið með að gera Valsmenn að Íslandsmeisturum á sínu fyrsta ári með liðið. Vísir/Daníel Þór Heimir Guðjónsson hefur unnið fleiri leiki og fleiri Íslandsmeistaratitla en allir þjálfarar í nútíma fótbolta á Íslandi en í dag getur hann náð því sem honum hefur aðeins tekist einu sinni áður í efstu deild á Íslandi. Valsmenn geta í dag unnið sinn tíunda leik í röð í Pepsi Max deild karla og um leið nánast tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn þegar þeir sækja FH-inga heim í uppgjöri tveggja efstu liða Pepsi Max deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 16.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, er á góðri leið með því að gera lið að Íslandsmeisturum í sjötta sinn. Í aðeins einum af hinum fimm Íslandsmeistaratitlunum hefur lið hans unnið fleiri deildarleiki í röð en Valsmenn í sumar. Valur er búið að vinna níu deildarleiki í röð undir stjórn Heimis en þetta er lengsta sigurganga liðs undir hans stjórn í ellefu ár. Valsliðið vann „bara“ þrjá af fyrstu sex leikjum sínum í Pepsi Max deildinni þar af töpuðu bæði heimaleikir á móti KR og ÍA. Valur tapaði síðast stigum í Pepsi Max deildinni í markalausu jafntefli á móti Stjörnunni 13. júlí síðastliðinn. Liðið vann næsta leik á móti Breiðabliki á útivelli og hefur ekki litið til baka síðan. Lengsta sigurganga liðs undir stjórn Heimis Guðjónssonar eru ellefu sigrar í röð sumarið 2009. FH tapaði þá á móti Keflavík í fyrsta leik en svaraði því með því að vinna ellefu næstu leiki sína. Liðið gerði jafntefli við Keflavík í tólfta leiknum og lék alls fjórtán leiki í röð án þess að tapa. Hér fyrir neðan má sjá lengstu sigurgöngur liða Heimis Guðjónssonar í efstu deild á Íslandi. Flestir deildarsigrar í röð hjá liðum Heimis Guðjónssonar: 11 sigrar í röð hjá FH (14. maí til 18. júlí 2009) 9 sigrar í röð hjá Val (19. júlí 2020 og er enn í gangi) 7 sigrar í röð hjá FH (28. júlí til 20. september 2015) 6 sigrar í röð hjá FH (22. ágúst til 25. september 2010) 5 sigrar í röð hjá FH (25. júlí til 29. ágúst 2011) 4 sigrar í röð hjá FH (20. júlí til 17. ágúst 2008) 4 sigrar í röð hjá FH (22. júlí til 23. ágúst 2012) 4 sigrar í röð hjá FH (20. ágúst til 18. september 2014) Lengstu sigurgöngu liða Heimis Guðjónssonar á hverju tímabili: FH 2008 - Íslandsmeistari - 4 sigrar í röð (20. júlí til 17. ágúst) FH 2009 - Íslandsmeistari - 11 sigrar í röð (14. maí til 18. júlí) FH 2010 - Silfurverðlaun - 6 sigrar í röð (22. ágúst til 25. september) FH 2011 - Silfurverðlaun - 5 sigrar í röð (25. júlí til 29. ágúst) FH 2012 - Íslandsmeistari - 4 sigrar í röð (22. júlí til 23. ágúst) FH 2013 - Silfurverðlaun - 3 sigrar í röð (20. júlí til 11. ágúst) FH 2014 - Silfurverðlaun - 4 sigrar í röð (20. ágúst til 18. september) FH 2015 - Íslandsmeistari - 7 sigrar í röð (28. júlí til 20. september) FH 2016 - Íslandsmeistari - 3 sigrar í röð (Tvisvar sinnum, í júní og í ágúst) FH 2017 - Þriðja sætið - 3 sigrar í röð (10. september til 21. september) Valur 2020 - Óklárað mót - 9 sigrar í röð (19. júlí 2020 og er enn í gangi) Pepsi Max-deild karla Valur FH Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira
Heimir Guðjónsson hefur unnið fleiri leiki og fleiri Íslandsmeistaratitla en allir þjálfarar í nútíma fótbolta á Íslandi en í dag getur hann náð því sem honum hefur aðeins tekist einu sinni áður í efstu deild á Íslandi. Valsmenn geta í dag unnið sinn tíunda leik í röð í Pepsi Max deild karla og um leið nánast tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn þegar þeir sækja FH-inga heim í uppgjöri tveggja efstu liða Pepsi Max deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 16.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, er á góðri leið með því að gera lið að Íslandsmeisturum í sjötta sinn. Í aðeins einum af hinum fimm Íslandsmeistaratitlunum hefur lið hans unnið fleiri deildarleiki í röð en Valsmenn í sumar. Valur er búið að vinna níu deildarleiki í röð undir stjórn Heimis en þetta er lengsta sigurganga liðs undir hans stjórn í ellefu ár. Valsliðið vann „bara“ þrjá af fyrstu sex leikjum sínum í Pepsi Max deildinni þar af töpuðu bæði heimaleikir á móti KR og ÍA. Valur tapaði síðast stigum í Pepsi Max deildinni í markalausu jafntefli á móti Stjörnunni 13. júlí síðastliðinn. Liðið vann næsta leik á móti Breiðabliki á útivelli og hefur ekki litið til baka síðan. Lengsta sigurganga liðs undir stjórn Heimis Guðjónssonar eru ellefu sigrar í röð sumarið 2009. FH tapaði þá á móti Keflavík í fyrsta leik en svaraði því með því að vinna ellefu næstu leiki sína. Liðið gerði jafntefli við Keflavík í tólfta leiknum og lék alls fjórtán leiki í röð án þess að tapa. Hér fyrir neðan má sjá lengstu sigurgöngur liða Heimis Guðjónssonar í efstu deild á Íslandi. Flestir deildarsigrar í röð hjá liðum Heimis Guðjónssonar: 11 sigrar í röð hjá FH (14. maí til 18. júlí 2009) 9 sigrar í röð hjá Val (19. júlí 2020 og er enn í gangi) 7 sigrar í röð hjá FH (28. júlí til 20. september 2015) 6 sigrar í röð hjá FH (22. ágúst til 25. september 2010) 5 sigrar í röð hjá FH (25. júlí til 29. ágúst 2011) 4 sigrar í röð hjá FH (20. júlí til 17. ágúst 2008) 4 sigrar í röð hjá FH (22. júlí til 23. ágúst 2012) 4 sigrar í röð hjá FH (20. ágúst til 18. september 2014) Lengstu sigurgöngu liða Heimis Guðjónssonar á hverju tímabili: FH 2008 - Íslandsmeistari - 4 sigrar í röð (20. júlí til 17. ágúst) FH 2009 - Íslandsmeistari - 11 sigrar í röð (14. maí til 18. júlí) FH 2010 - Silfurverðlaun - 6 sigrar í röð (22. ágúst til 25. september) FH 2011 - Silfurverðlaun - 5 sigrar í röð (25. júlí til 29. ágúst) FH 2012 - Íslandsmeistari - 4 sigrar í röð (22. júlí til 23. ágúst) FH 2013 - Silfurverðlaun - 3 sigrar í röð (20. júlí til 11. ágúst) FH 2014 - Silfurverðlaun - 4 sigrar í röð (20. ágúst til 18. september) FH 2015 - Íslandsmeistari - 7 sigrar í röð (28. júlí til 20. september) FH 2016 - Íslandsmeistari - 3 sigrar í röð (Tvisvar sinnum, í júní og í ágúst) FH 2017 - Þriðja sætið - 3 sigrar í röð (10. september til 21. september) Valur 2020 - Óklárað mót - 9 sigrar í röð (19. júlí 2020 og er enn í gangi)
Flestir deildarsigrar í röð hjá liðum Heimis Guðjónssonar: 11 sigrar í röð hjá FH (14. maí til 18. júlí 2009) 9 sigrar í röð hjá Val (19. júlí 2020 og er enn í gangi) 7 sigrar í röð hjá FH (28. júlí til 20. september 2015) 6 sigrar í röð hjá FH (22. ágúst til 25. september 2010) 5 sigrar í röð hjá FH (25. júlí til 29. ágúst 2011) 4 sigrar í röð hjá FH (20. júlí til 17. ágúst 2008) 4 sigrar í röð hjá FH (22. júlí til 23. ágúst 2012) 4 sigrar í röð hjá FH (20. ágúst til 18. september 2014) Lengstu sigurgöngu liða Heimis Guðjónssonar á hverju tímabili: FH 2008 - Íslandsmeistari - 4 sigrar í röð (20. júlí til 17. ágúst) FH 2009 - Íslandsmeistari - 11 sigrar í röð (14. maí til 18. júlí) FH 2010 - Silfurverðlaun - 6 sigrar í röð (22. ágúst til 25. september) FH 2011 - Silfurverðlaun - 5 sigrar í röð (25. júlí til 29. ágúst) FH 2012 - Íslandsmeistari - 4 sigrar í röð (22. júlí til 23. ágúst) FH 2013 - Silfurverðlaun - 3 sigrar í röð (20. júlí til 11. ágúst) FH 2014 - Silfurverðlaun - 4 sigrar í röð (20. ágúst til 18. september) FH 2015 - Íslandsmeistari - 7 sigrar í röð (28. júlí til 20. september) FH 2016 - Íslandsmeistari - 3 sigrar í röð (Tvisvar sinnum, í júní og í ágúst) FH 2017 - Þriðja sætið - 3 sigrar í röð (10. september til 21. september) Valur 2020 - Óklárað mót - 9 sigrar í röð (19. júlí 2020 og er enn í gangi)
Pepsi Max-deild karla Valur FH Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira