Tuttugu manns handteknir í mótmælunum í Bangkok Telma Tómasson skrifar 15. október 2020 07:04 Óeirðalögreglan var kölluð út vegna mótmælanna. Getty/Lauren DeCicca
Lögreglan í Tælandi handtók um tuttugu manns sem tóku þátt í fjölmennum mótmælaaðgerðum í Bangkok, höfuðborg landsins, í gærkvöldi. Nöfn hafa ekki verið gefin upp, en samkvæmt frétt breska ríkismiðilsins BBC eru nokkrir af helstu talsmönnum mótmælenda meðal hinna handteknu, þar á meðal Anon Nampa mannréttindalögmaður og þekktur aðgerðarsinni innan stúdentahreyfingarinnar, Parit Chiwarak. Heimildir fréttamiðilsins eru studdar af myndbandsupptökum sem streymt var á netinu af atburðum á vettvangi. Neyðarástandi vegna mótmælanna í Bangkok var lýst yfir í gærkvöldi, en þar með eru yfirvöldum veittar heimildir til að stöðva hvers kyns mótmæli og stærri samkomur, sem og að beita valdi ef svo ber undir. Þá eru hömlur settar á umfjöllun fjölmiðla af gangi mála. Lýðræðishreyfing sem leidd er af stúdentum hefur krafist afsagnar forsætisráðherra landsins og að dregið verði úr völdum Maha Vajiralongkorn konungs. Mótmæli hafa staðið yfir nokkuð linnulaust frá því í júlí en upphaf þeirra má rekja til þess að dómstóll skipaði fyrir um að stjórnarandstöðuflokkur skyldi leystur upp í febrúar.
Taíland Mest lesið Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent „Höfum ekki unnið nóg“ Erlent Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Innlent Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Innlent Vaxandi ótti við langvarandi átök Erlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Fleiri fréttir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Sjá meira