Erlent

Youtube tekur þátt í herferð gegn samsæriskenningum

Kjartan Kjartansson skrifar
Myndbandsveitan Youtube hefur lengi legið undir ámæli fyrir að ýta notendum sínum í átt að sífellt öfgakenndara efni og skoðunum. Google ætlar nú að skera upp herör gegn ákveðnum hættulegum samsæriskenningum á miðlinum.
Myndbandsveitan Youtube hefur lengi legið undir ámæli fyrir að ýta notendum sínum í átt að sífellt öfgakenndara efni og skoðunum. Google ætlar nú að skera upp herör gegn ákveðnum hættulegum samsæriskenningum á miðlinum. AP/Patrick Semansky

Bannað verður að bendla einstaklinga eða hópa við samsæriskenningar eins og Qanon sem hafa orðið kveikjan að ofbeldisverkum á samfélagsmiðlinum Youtube. Þar með fylgir Google, eigandi Youtube, í fótspor samfélagsmiðlanna Facebook og Twitter í að taka á fjarstæðukenndum og hættulegum samsæriskenningum.

Tugir þúsunda myndbanda og hundruð rása sem tengjast Qanon-samsæriskenningunni hafa þegar verið fjarlægð af Youtube á grundvelli núgildandi notendaskilmála, sérstaklega þegar þar koma fram ofbeldishótanir eða afneitun á meiriháttar ofbeldisverkum, að því er segir í frétt AP-fréttastofunnar.

„Öll þessi vinna hefur leikið lykilhlutverk í að takmarka dreifingu skaðlegra samsæriskenninga en það er enn meira sem við getum gert til að taka á ákveðnum samsæriskenningum sem eru otaðar til þess að réttlæta ofbeldi í raunheimum, eins og Qanon,“ sagði í bloggfærslu fyrirtækisins í dag.

Qanon er fjarstæðukennd samsæriskenning sem gengur út á að Donald Trump Bandaríkjaforseti heyi leynilegt stríð gegn alþjóðlegum hring djöfladýrkandi barnaníðinga sem svo vill til að margir pólitískir andstæðingar forsetans að tilheyri. Trúa fylgismenn kenningarinnar því að Trump sé við það að handtaka fjölda fyrirmenna og stjórnmálamanna.

Youtube bannar einnig að svonefndri Pizzagate-samsæriskenningu, sem var forveri Qanon-kenningarinnar, sé beint að fólki eða hópum. Sú kenning varð vopnuðum manni tilefni til að fara inn á veitingastað í Washington-borg í Bandaríkjunum til þess að „rannsaka“ hvort að þar leyndist barnaníðshringur og hleypa af skoti úr hríðskotariffli mánuði eftir forsetakosningarnar árið 2016. Hann var dæmdur í fangelsi árið eftir.

Var helsti vettvangurinn fyrir dreifingu kenningarinnar

Sophie Bjork-James, mannfræðingur við Vanderbilt-háskóla, sem rannsakar Qanon segir AP-fréttastofunni að Youtube hafi verið hafi verið helsti vettvangurinn þar sem kenningunni var dreift undanfarin þrjú ár.

„Án miðilsins væri Q líklega áfram lítt þekkt samsæriskenning. Um árabil gaf Youtube þessum róttæka hópi alþjóðlegan markhóp,“ segir hún.

Qanon hefur orðið æ meira áberandi í Bandaríkjunum og í fleiri löndum undanfarin misseri og lýsir nú nokkur hópur frambjóðenda Repúblikanaflokksins í kosningunum í nóvember yfir trúnaði á kenninguna. Ýmsir sérfræðingar spyrja sig því hvort að Google grípi ekki of seint í rassinn með aðgerðir sínar nú.

Facebook tilkynnti í síðustu viku að miðillinn ætlaði að banna hópa sem styðja Qanon opinskátt. Síður, hópar og Instragram-reikningar yrðu teknir niður ef þeir deildu Qanon-efni, jafnvel þó ekki væri hvatt beinlínis til ofbeldis. Twitter lét til skarar skríða gegn Qanon í sumar og bannaði þúsundir reikninga sem tengdust Qanon og bönnuðu deilingar á vefslóðum. Þá hætti miðillinn að mæla með Qanon tístum.


Tengdar fréttir

Ánægður með stuðning hættulegra samsæringa

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti yfir ánægju með hreyfingu sem kallast Qanon, sem byggir á innihaldslausum samsæriskenningum og Alríkislögregla Bandaríkjanna segir að ógn stafi af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×