Biden tryggði sér öll atkvæðin í Dixville Notch Atli Ísleifsson skrifar 3. nóvember 2020 07:31 Frá Dixville Notch í nótt. AP
Nú liggur fyrir hvernig íbúar í Dixville Notch í New Hampshire greiddu atkvæði í bandarísku forsetakosningunum sem fram fara í dag. Bærinn hefur lengi stært sig af því að vera fyrstur til að loka kjörstað og kynna niðurstöðuna, en einungis eru þar nú fimm manns á kjörskrá. Óhætt er að segja að um sannkallað vígi sé að ræða fyrir Joe Biden, frambjóðanda Demókrata, að þessu sinni en allir fimm sem voru á kjörskrá kusu Biden. AP Kjörstaður Dixville Notch, sem er að finna við landamærin að Kanada, opnaði og lokaði um miðnætti að staðartíma og hófst í kjölfarið talning atkvæða. Sú talning tók ekki langan tíma og voru niðurstöðurnar svo kynntar. Sökum þessarar hefðar þorpsins, sem nær aftur til ársins 1960, eru fjölmiðlamenn tíðir gestir þar á kjördegi. Í síðustu forsetakosningum, árið 2016, hlaut Hillary Clinton fjögur atkvæði í Dixville Notch, Donald Trump tvö og Gary Johnson eitt. Þá var einhver sem ritaði nafn Mitt Romney á kjörseðilinn. Það er því ljóst að niðurstaðan í Dixville Notch gefur ekki endilega fyrirheit um sjálfar niðurstöður kosninganna.
Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira