Segja Landhelgisgæsluna hafa sýnt flugvirkjum „mikla vanvirðingu“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 24. nóvember 2020 17:41 Ekki sést til lands í kjaradeilu flugvirkja Landhelgisgæslunnar við íslenska ríkið. Vísir/Vilhelm
Jarðvísindamenn, Vestmannaeyingar, sjómenn, slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn, sjómenn, vélstjórar og málmtækimenn eru á meðal þeirra sem lýst hafa yfir miklum áhyggjum af yfirstandandi vinnustöðvun flugvirkja hjá Landhelgisgæslu Íslands og þeirra áhrifa sem það hefur á öryggi landsmanna, hvort sem er á sjó eða landi. Þrjú félög sjómanna- og vélstjóra segja Landhelgisgæsluna hafa sýnt flugvirkjum mikla vanvirðingu. Fundi samninganefnda Flugvirkjafélags Íslands og ríkisins vegna kjaradeilu flugvirkja sem starfa hjá Landhelgisgæslunni lauk án niðurstöðu á fimmta tímanum í gær. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Þetta hefur meðal annars þau áhrif að engin björgunarþyrla verður til taks hjá Landhelgisgæslunni í tvo sólarhringa frá og með miðnætti á miðvikudag. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra viðraði áhyggjur sínar af stöðu mála í kjaradeilunni í morgun, en hún ræddi vinnustöðvunina á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Lagasetning á verkfallið kom ekki til tals í morgun að sögn ráðherra. Fjölmargir talsmenn hinna ýmsu hópa sem reiða sig á þjónustu Landhelgisgæslunnar hafa viðrar áhyggjur sínar af stöðu mála í kjaradeilunni. Jarðvísindamenn benda á að náttúruhamfarir dynji yfir með skömmum fyrirvara Þannig lýsir Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur því í færslu á Facebook-síðu Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands hversu mikilvæg þjónusta þyrlusveita Landhelgisgæslunnar sé vegna eftirlits og rannsókna á eldgosum og annarri náttúruvá hér á landi. Hann segir stöðuna grafalvarlega og að meta þurfi að verðleikum þau mikilvægu störf sem flugvirkjar vinna. „En það er fullkomlega óásættanleg staða að skipulag mála sé með þeim hætti að grundvallarþættir í öryggiskerfi landsins stöðvist vegna verkfalls,“ skrifar Magnús Tumi. Nefnir hann dæmi um náttúruhamfarir undanfarinna ára þar sem þyrlur Landhelgisgæslunnar léku lykilhlutverk. „Náttúruhamfarir dynja oft yfir með stuttum fyrirvara. Snjóflóðin og óveðrin í vetur áttu sér ekki margra daga fyrirvara þar sem fyrirséð var í hvað stefndi. Fyrirvarinn fyrir eldgos er yfirleitt ekki langur, oft fáar klukkustundir. Í gosunum í Gjálp 1996, Grímsvötnum 1998, 2004 og 2011, Heklu 2000, Eyjafjallajökli 2010 og Holuhrauni 2014-15 gegndu þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar og flugvél Ísavía lykilhlutverki við að meta ástandið svo hægt væri að taka ákvarðanir um rýmingar og viðbrögð. Ef drægi til tíðinda á næstu dögum gæti sú staða komið upp að viðbragðið væri mjög laskað vegna þess að loftförin eru ekki flugfær.“ Finna þurfi tafarlausa lausn á kjaradeilunni. Vestmannaeyingar sammála Vestmannaeyingar virðast deila áhyggjum Magnúsar Tuma en í yfirlýsingu frá almannavarnanefnd Vestmannaeyja kemur fram að nefndin lýsi yfir alvarleg áhyggjum af þeirri stöðu sem kominn er upp vegna kjaradeilunnar. „Þetta er með öllu óviðunandi og getur ógnað öryggi íbúa í Vestmannaeyjum og sjófarenda ekki síst í því ljósi að veðurspá fyrir næstu daga er slæm og við búið að samgöngur milli lands og Eyja geti raskast verulega af þeim sökum. Skorar nefndin á stjórnvöld að gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að þyrluþjónusta Landhelgisgæslunnar og neyðarþjónusta á sjó og landi verði með viðunandi hætti.“ Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna tekur einnig undir þessar áhyggjur. Í yfirlýsingu sem send var á fjölmiðla nú síðdegis er skorað á samninganefnd ríkisins að ná samningum við flugvirka. „Þrátt fyrir að Ísland sé lítil eyja eru samgöngur hér sérstaklega yfir vetrarmánuðina oft erfiðar og tímafrekar. Ef bráð veikindi eða slys bera að höndum er mikilvægt að keðja neyðarþjónustu heilbrigðiskerfisins utan spítala sé sterk og þar spila þyrlur Landhelgisgæslunnar afar mikilvægt hlutverk fyrir stóran hluta landsins og er ómissandi fyrir sjófarendur. Flugvirkjar að störfum.Vísir/Vilhelm Slys eða bráð veikindi gera ekki boð á undan sér og fyrirsjáanleg stöðvun þjónustu björgunarþyrlna geta valdið einstaklingum sem þurfa og eiga rétt á aðgengi að sérhæfðri heilbrigðisþjónustu ómældum skaða,“ segir í yfirlýsingu sem var einnig send á formann samninganefnd ríkisins, dómsmálaráðherra og alþingismenn í von um að deilan fái farsælan endi, að því er fram kemur í tölvupósti Magnúsar Smára Smárasonar, formanns sambandsins, til fjölmiðla. Þrjú félög lýsa yfir fullum stuðningi við flugvirkja Þá sendu Sjómannafélag Íslands, Félag vélstjóra og málmtæknimanna og Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur einnig frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem sambærilegar áhyggur og finna má hér að ofan voru viðraðar. Telja félögin að öryggi sjófarenda og landsmanna sé stefnt í hættu við þær aðstæður sem nú eru upp komnar. Þá lýsa félögin þrjú yfir fullum stuðningi við flugvirkja og senda forvarsmönnum Landhelgisgæslunnar pillu í leiðinni. „Svo það komi skýrt fram þá hafa þær starfstéttir sem eru á skipum Gæslunnar engan verkfallsrétt og er framganga Landhelgisgæslunnar gagnvart þeim stéttum til háborinna skammar, og hefur stofnunin sýnt þeim mikla vanvirðingu með mismunun á kjörum þar sem óskýrir hagsmunir séu hafðir í forgangi í gerð kjarasamninga.“ Sem fyrr segir sést ekki til lands í kjaradeilunni og ekki hefur verið boðað til viðræðna eftir að fundi var slitið í gær
Kjaramál Verkföll 2020 Landhelgisgæslan Tengdar fréttir Lög á verkfall flugvirkja ekki til umræðu Dómsmálaráðherra ræddi vinnustöðvun flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Engin ákvörðun hefur verið tekin um framhaldið en ráðherra hyggur á fund með Landhelgisgæslunni í dag. 24. nóvember 2020 12:28 Fundi slitið og engin þyrla til taks næstu tvo daga Fundi samninganefnda Flugvirkjafélags Íslands og ríkisins vegna kjaradeilu flugvirkja sem starfa hjá Landhelgisgæslunni lauk án niðurstöði á fimmta tímanum í dag. 23. nóvember 2020 17:37 „Deilan er á alvarlegum og erfiðum stað“ Samninganefndir flugvirkja Landhelgisgæslunnar og ríkisins héldu til samningafundar klukkan 11.30 í dag. Ríkissáttasemjari boðaði til fundarins vegna alvarlegrar stöðu sem blasir við hjá gæslunni. 23. nóvember 2020 13:35 Ráðherra segir koma til greina að setja lög á verkfall flugvirkja Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir það koma til greina að lög verði sett á verkfall flugvirkja Landhelgisgæslunnar til að binda endi á það. 20. nóvember 2020 20:45 Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira
Lög á verkfall flugvirkja ekki til umræðu Dómsmálaráðherra ræddi vinnustöðvun flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Engin ákvörðun hefur verið tekin um framhaldið en ráðherra hyggur á fund með Landhelgisgæslunni í dag. 24. nóvember 2020 12:28
Fundi slitið og engin þyrla til taks næstu tvo daga Fundi samninganefnda Flugvirkjafélags Íslands og ríkisins vegna kjaradeilu flugvirkja sem starfa hjá Landhelgisgæslunni lauk án niðurstöði á fimmta tímanum í dag. 23. nóvember 2020 17:37
„Deilan er á alvarlegum og erfiðum stað“ Samninganefndir flugvirkja Landhelgisgæslunnar og ríkisins héldu til samningafundar klukkan 11.30 í dag. Ríkissáttasemjari boðaði til fundarins vegna alvarlegrar stöðu sem blasir við hjá gæslunni. 23. nóvember 2020 13:35
Ráðherra segir koma til greina að setja lög á verkfall flugvirkja Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir það koma til greina að lög verði sett á verkfall flugvirkja Landhelgisgæslunnar til að binda endi á það. 20. nóvember 2020 20:45