Fjögur tilboð bárust og var tilboð félagsins hæsta gilda tilboðið að því er fram kemur á vef Landsbankans.
Sigtún Þróunarfélag er í eigu Leó Árnasonar og Kristjáns Vilhelmssonar, stærsta einstaka eiganda í útgerðarfélaginu Samherja. Eiga þeir hvor fyrir sig 44 prósenta hlut í Sigtúni þróunarfélagi.
Landsbankahúsið á Selfossi var reist á árunum 1949-1953, eftir grunnteikningum Guðjóns Samúelssonar, en áður hafði bankinn verið til húsa í Tryggvaskála og að Austurvegi 21. Húsið var auglýst til sölu í lok október.
Bæjarfulltrúi Árborgar gagnrýndi Landsbankann á dögunum fyrir að setja húsið á sölu. Miklu nær væri að bankinn myndi flytja höfuðstöðvar sínar í húsið í stað þess að vera að eyða milljörðum í byggingu nýrra höfuðstöðva í miðbæ Reykjavíkur.
Á vefsíðu Landsbankans segir að fjögur tilboð hafi borist en fallið frá einu þeirra. Landsbankinn mun leigja hluta hússins undir starfsemi sína þar til útibúið flytur á nýjan stað á Selfossi.
„Þessi kaup eru liður í uppbyggingu okkar á Selfossi og undirstrikar þá sannfæringu sem við höfum fyrir framtíðarmöguleikum bæjarins. Húsið er stór hluti af sögu og bæjarmynd Selfoss og í því liggja mikil menningarverðmæti. Sigtún Þróunarfélag er meðvitað um varðveislugildi þess og mun leggja áherslu á að það haldi reisn sinni til framtíðar og að dyr þess verði áfram opnar Selfyssingum og gestum þeirra, segir Leó Árnason á vefsíðu Landsbankans.
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir Landsbankahúsið á Selfossi fallegt og svipmikið hús sem tengist sögu bankans órjúfanlegum böndum.
„Vegna breytinga á bankaþjónustu er það hins vegar orðið of stórt fyrir starfsemina og það er tímabært fyrir bankann að flytja í nýtt og hentugra húsnæði. Sigtún Þróunarfélag vinnur nú að uppbyggingu á nýjum miðbæ á Selfossi af miklum myndarskap og mun félagið vafalaust finna húsinu nýtt og spennandi hlutverk.“