Víkurfréttir greina frá málinu á vef sínum í dag en Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir leikskólafulltrúi í Reykjanesbæ staðfestir það sem þar kemur fram í samtali við Vísi. Hún vill ekki tjá sig frekar um málið í kvöld.
Fram kemur í frétt Víkurfrétta að starfsmaður leikskólans hafi greinst með kórónuveiruna síðasta laugardag. Í framhaldinu hafi fimm starfsmenn til viðbótar greinst og skólanum í kjölfarið lokað. Honum verði áfram lokað út vikuna hið minnsta.
Allir starfsmenn leikskólans, auk 85 barna á leikskólanum, voru settir í sóttkví, að því er segir í frétt Víkurfrétta. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu leikskólans starfa 24 á leikskólanum.
Samkvæmt upplýsingum á Covid.is eru nú tíu í einangrun með Covid-19 á Suðurnesjum og 135 í sóttkví. Ekki er víst hvort smitið á Gimli sé inni í þeim tölum en ef svo er virðist mega rekja stóran hluta smitaðra, sem og þeirra sem eru í sóttkví, á Suðurnesjum til leikskólans.