Fyrsti listi Viðreisnar í Reykjanesbæ kynntur Arnar Páll Guðmundsson verður oddviti Viðreisnar í bæjarstjórnarkosningum í Reykjanesbæ. Þetta er í fyrsta skipti sem flokkurinn býður fram í sveitarfélaginu. Innlent 11.3.2026 12:04
Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða. Veður 3.3.2026 06:34
Framboðslistinn í Reykjanesbæ staðfestur Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ var samþykktur á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ á Hótel Keflavík í gærkvöldi. Innlent 28.2.2026 11:06
Endurskoða skipurit áður en ákvörðun um varaslökkviliðsstjóra verður tekin Innlent 27.2.2026 07:33
Skjálftahrina við Eldey Skjálftahrina er í gangi við Eldey á Reykjaneshrygg. Tugir skjálfta hafa mælst þar í dag, sá stærsti 2,8 að stærð. Innlent 8. febrúar 2026 14:20
Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það létti að hafa unnið sannfærandi sigur í leiðtogaprófkjöri flokksins í Reykjanesbæ í gær. Hann kveðst afar þakklátur og ætlar að sinna þingstörfum og kosningabaráttu fram að sveitarstjórnarkosningum í maí. Innlent 1. febrúar 2026 14:53
Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Vilhjálmur Árnason alþingismaður leiðir lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ. Hann hlaut 58 prósent atkvæða í prófkjöri flokksins. Innlent 31. janúar 2026 21:04
Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ kjósa sér oddvita í dag. Margrét Sanders sitjandi oddviti gefur ekki kost að sér áfram en valið stendur á milli þriggja. Innlent 31. janúar 2026 18:20
Að hafa það sem þarf Á Íslandi eru 62 sveitarfélög og jafn margar sveitarstjórnir, og sveitarstjórar. Á sviði sveitarstjórna eru ákvarðanir teknar sem hafa bein áhrif á lífsgæði og afkomu einstaklinga. Skoðun 31. janúar 2026 11:02
Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Sautján ára drengur meiddist á fótum eftir að hafa reynt að koma nágranna sínum til aðstoðar í eldsvoða í Reykjanesbæ. Hann reyndi að brjóta niður hurð nágrannans sem var föst inni í íbúðinni sinni. Innlent 29. janúar 2026 06:00
Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás gagnvart eigin syni árið 2023, þegar sonurinn var sextán ára. Honum er gefið að sök að hafa tekið piltinn hálstaki með báðum höndum og þrýst honum upp við borð. Innlent 28. janúar 2026 14:43
Konan enn þungt haldin Kona liggur enn þungt haldin eftir að eldur kviknaði í íbúð hennar við Vatnsholt í Reykjanesbæ á sunnudagskvöld. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir eldsupptök enn ekki liggja fyrir. Rannsókn lögreglu miði vel. Innlent 28. janúar 2026 13:42
Þessi skipa lista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ Framboðslisti Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026 hefur verið samþykktur. Fundur félgasmanna fór fram í gærkvöldi. Innlent 28. janúar 2026 10:08
Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Tímabundið getur verið meiri hveralykt af vatni en venjulega í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum vegna íblöndunar súlfíts í heita vatnið. Íblöndunin er vegna viðhalds og viðgerðar HS Orku á búnaði sínum á Fitjum í Reykjanesbæ. Fólk sem viðkvæmt er fyrir súlfíti í matvælum er bent á að heita vatnið sé ekki ætlað til neyslu eða til matreiðslu. Innlent 27. janúar 2026 12:35
„Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Kona liggur þungt haldin á gjörgæsludeild eftir að eldur kom upp í íbúð hennar í Reykjanesbæ seint í gærkvöldi. Sjö hundar voru í íbúðinni og drápust en slökkviliðsstjóri segir konuna hafa verið komna í sjúkrabíl innan við tíu mínútum eftir að útkallið barst. Innlent 26. janúar 2026 19:35
Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sextán manns leituðu aðstoðar Rauða krossins í Reykjanesbæ í gærkvöldi vegna eldsvoðans í fjölbýlishúsi við Vatnsholt í bænum í nótt. Ein fjölskylda var aðstoðuð með gistingu vegna brunans. Innlent 26. janúar 2026 15:29
Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Íbúa í fjölbýlishúsi við Vatnsholt í Reykjanesbæ er haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans eftir eldsvoða sem kom upp í íbúð í húsinu í gærkvöldi. Sjö hundar drápust í eldsvoðanum. Innlent 26. janúar 2026 10:23
Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja luku störfum rétt rúmlega eitt í nótt eftir eld sem kom upp í fjölbýlishúsi við Vatnsholt í Reykjanesbæ. Innlent 26. janúar 2026 06:48
Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Eldur kviknaði í fjölbýlishúsi við Vatnsholt í Reykjanesbæ í kvöld. Einn var í húsinu þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang og var fluttur með sjúkrabíl til Reykavíkur. Fimmtán aðrir íbúar komust út og er búið að slökkva eldinn. Innlent 25. janúar 2026 23:57
Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Farið var með ungmenni á kjörstað eftir vísindaferð í gær á vegum Vilhjálms Árnasonar, ritara Sjálfstæðisflokksins og frambjóðanda í Reykjanesbæ, þar sem boðið var upp á áfengi. Skipuleggjandi segir fólk hafa verið með lögaldur „eftir [sinni] bestu vitund.“ Innlent 25. janúar 2026 20:57
Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Bjarni Halldór Janusson, fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar og aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, ætlar í framboð með Samfylkingunni í Reykjanesbæ. Innlent 25. janúar 2026 12:15
Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Sverrir Bergmann Magnússon, tónlistarmaður, varaþingmaður og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ, hefur ráðið sig í starf samfélags- og sjálfbærnisstjóra hjá Kadeco, þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar. Þar sem fyrirtækið starfar bæði í Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ hefur hann ákveðið að hætta í bæjarstjórn og kveðst ekki bjóða sig fram aftur. Innlent 20. janúar 2026 22:21
Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Ómögulegt er að segja til um það hvað varð ketti sem fannst í poka í hrauninu í Helguvík í Reykjanesbæ að aldurtila. Að sögn starfsmanns Dýralæknastofu Suðurnesja er allt eins líklegt að honum hafi verið komið þar fyrir af eigendum sínum. Innlent 19. janúar 2026 06:17
Segir af sér þingmennsku vegna tilraunar til vændiskaupa Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar, hefur sagt af sér þingmennsku vegna tilraunar til að kaupa vændi árið 2012. Hann var yfirheyrður af lögreglu á sínum tíma en segist ekki hafa verið ákærður. Hann tók ákvörðun um afsögn þegar Vísir ætlaði að fjalla um málið. Hann segist hafa gert stór mistök sem hann harmi mjög. Innlent 16. janúar 2026 06:00
Kviknaði í ruslagámi í Keflavík Eldur kviknaði í stórum opnum ruslagámi hjá grenndargámnum fyrir utan gömlu slökkvistöðina í Keflavík í kvöld. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá flugeldatertu en ekki er hægt að slá neinu á föstu í þeim efnum. Innlent 10. janúar 2026 00:14