Snemmbúin jólagjöf fyrir stuðningsmenn Lakers: Davis framlengir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. desember 2020 16:30 Anthony Davis varð NBA-meistari í fyrsta sinn í haust. getty/Douglas P. DeFelice Anthony Davis mun skrifa undir fimm ára samning við Los Angeles Lakers. Hann átti stóran þátt í að liðið varð NBA-meistari á síðasta tímabili.
Þessar fréttir koma í kjölfarið á fréttunum um að LeBron James hafi framlengt samning sinn við Lakers um tvö ár. Lakers heldur því báðum stórstjörnum síðan a.m.k. til 2023. Alltaf var gert ráð fyrir því að Davis yrði áfram í herbúðum Lakers; eina spurningin var hversu langan samning hann myndi gera. Á endanum samþykkti hann fimm ára samning Lakers sem færir honum 190 milljónir Bandaríkjadala. Davis, sem er 27 ára, gekk í raðir Lakers fyrir síðasta tímabil en hann kom til félagsins í skiptum frá New Orleans Pelicans. Á síðasta tímabili var Davis með 26,1 stig, 9,3 fráköst, 3,2 stoðsendingar, 2,3 varin skot og 1,5 stolna bolta að meðaltali í leik í deildarkeppninni. Í úrslitakeppninni var hann með 27,7 stig, 9,7 fráköst, 3,5 stoðsendingar, 1,4 varin skot og 1,2 stolna bolta að meðaltali í leik. Davis var valinn í fyrsta úrvalslið NBA-deildarinnar og var í 2. sæti í kjörinu á varnarmanni ársins. Auk þess að endursemja við Davis og LeBron hefur Lakers fengið þá Dennis Schröder, Marc Gasol og Montrezl Harrell, Wesley Matthews og Alfonzo McKinnie eftir að síðasta tímabili lauk. Dwight Howard, Rajon Rondo, JaVale McGee, Quinn Cook og Danny Green eru hins vegar horfnir á braut.
NBA Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira