Viðbragðsaðilar og björgunarfólk var skimað fyrir kórónuveirunni í morgun auk fjölmiðlamanna sem voru fyrir austan, svo smit berist ekki inn í samfélagið
Varðskipið Týr kom til Seyðisfjarðar klukkan ellefu í gærkvöldi eftir sólarhrings siglingu. Skipið verður þar til taks meðan þurfa þykir. Í gærkvöldi sótti áhöfnin þrennt sem varð innlyksa við Hánefsstaði ásamt tveimur köttum og flutti til hafnar á Seyðisfirði.
Fríar þvottavélar og inneignir í verslanir
Margir vilja rétta Seyðfirðingum hjálparhönd en á Facebooksíðunni Seyðisfjörður umræða um málefni samfélagsins.
Eigandi Hótel Múla í Ármúla býður íbúum gistingu ef þeir koma til Reykjavíkur, Ormsson ætlar að gefa öllum þeim sem misstu heimili sín þvottavélar að gjöf, Lindex býður vildakortshöfum sínum tíu þúsund inneign og fimleikadeild Hattar á Egilsstöðum býður börnum fæddum 2005 og yngri í fimleika í dag. Þá eru ýmsir að bjóða fram aðstoð með jólagjafir eða fatnað.
Allir Seyðfirðingar fengu svefnstað eftir aurskriðurnar; fólk fékk rúmpláss á hótelum, gistihúsum og í heimahúsum. Fjöldi fólks hefur boðið Seyðfirðingum húsnæði til að gista í og margir hafa boðist til að lána íbúðir sínar og hús yfir jólin.
Berglind Sveinsdóttir, formaður Múlasýsludeildar Rauða krossins, segir stuðninginn áþreifanlegan.
„Við finnum gríðarlegan stuðning. Þetta er alveg stórkostlegt. Það er einfaldlega ekkert annað orð yfir það.“
Hún segir að fjöldi fyrirtækja og einstaklinga hafi styrkt Rauða krossinn og Seyðfirðinga.
„Við erum að fá sendingar frá fyrirtækjum í Reykjavík og alls staðar að af landinu og verið að bjóða gistingar fyrir sunnan ef einhver vill fara suður og vera þar um jólin. Maður er bara klökkur, það er einfaldlega þannig,“ segir Berglind.