Eyrún Huld er mjög dugleg að æfa sig á fiðlunum en þá laumast hún oft inn í fjárhús og spilar fyrir kindurnar og hrútana en hún á heima á bænum Þrándarholti 4 í Skeiða og Gnúpverjahreppi.
Hún er búin með fimm stig í fiðluleik en hún byrjaði að læra á fiðlu rúmlega þriggja ára gömul. Hún er nemandi í Tónlistarskóla Árnesinga og tók nýlega þátt í fiðlukeppni pólska sendiráðsins þar sem fjölmargir nemendur úr íslenskum tónlistarskólum tóku þátt. Eyrún Huld sigraði í sínum aldursflokki en hún spilaði tvö verk, sem hún sendi inn í myndbandsformi.
Ég sendi inn Vivaldi, 3. Þátt konsert í g-moll og Salut d’amour eftir Edward Elgar. Það var mjög gaman að vinna. Minn æðsti draumur er að spila með Sinfóníuhljómsveit Íslands í framtíðinni,“ segir Eyrún Huld.
En hvernig áhorfendur eru kindurnir og hrútarnir?
„Féð eru skemmtilegir áhorfendur en mætti reyndar hlusta aðeins betur, nei ég segir svona, það er mjög gaman að spila í fjárhúsinu eins og alls staðar annars staðar“, segir þessi hressa og skemmtilega stelpa.