Sálfræðingur sem braut gegn stjúpdóttur þarf að svara fyrir gamlar ásakanir um brot gegn ungum dreng Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. mars 2020 09:00 Sálfræðingurinn starfaði hjá Reykjavíkurborg árið 2018 þegar hann var ákærður og svo dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn fyrrum sjúpdóttur sinni. Nú er hann ákærður fyrir brot gegn dreng við fermingaraldur upp úr aldarmótum í öðru sveitarfélagi þar sem hann var í framlínu í fræðslustarfi. Vísir/Vilhelm
Sálfræðingur um sextugt sem dæmdur var í tveggja og hálfs árs fangelsi sumarið 2019 fyrir að brjóta kynferðislega á fyrrverandi stjúpdóttur sinni hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára dreng upp úr aldamótum. Drengurinn var í sálfræðimeðferð hjá honum í grunnskóla. Málið var fyrst kært til lögreglu árið 2014, um áratug eftir að meint brot áttu sér stað, en leiddi þá ekki til ákæru. Sálfræðingurinn hefur starfað með börnum og unglingum í áratugi. Meðal annars sem meðferðarfulltrúi og fræðslustjóri í stóru sveitarfélagi. Hann upplýsti ekki um áratuga gamla kæru á hendur sér fyrir að nauðga drengnum þegar hann réð sig til Reykjavíkurborgar í ágúst 2017. Í framhaldi af því að hann var kærður fyrir að brjóta á stjúpdóttur sinni í desember 2017 var hann færður til í starfi. Hlaut hann svo tveggja og hálfs árs dóm sumarið 2019. Hann áfrýjaði dómnum til Landsréttar. Grænt ljós á endurupptöku Ungi maðurinn, sem er um þrítugt í dag, segir sálfræðinginn hafa nauðgað sér þegar hann var í sálfræðimeðferð hjá honum í 8. bekk. Nýjar upplýsingar í september 2018 leiddu til þess að ríkissaksóknari samþykkti endurupptöku málsins. Var það sent til rannsóknar hjá lögreglu og þaðan til héraðssaksóknara. Aðilum málsins var í síðustu viku tilkynnt um að ákært yrði í málinu. Ungi maðurinn tjáði Vísi í viðtali árið 2018, undir nafnleynd, að honum þætti erfiðast að hugsa til þess að ef kæra hans hefði leitt til ákæru þá hefði sálfræðingurinn kannski aldrei náð að brjóta á öðru barni. Kók og prins póló Það var í október 2014 sem karlmaðurinn lagði fram kæru á hendur sálfræðingnum fyrir nauðgun um áratug fyrr. Málið var rannsakað með hliðsjón af 1. mgr. 202. gr. hegningarlaga nr. 19/1940, sem fjallar um kynferðisbrot gegn börnum. Drengurinn er greindur með einhverfu og var lagður í einelti í grunnskóla. Af þeim sökum var hann látinn hitta skólasálfræðing. Ungi maðurinn segir sálfræðinginn hafa gefið sér kók og prins eftir að hafa nauðgað sér. Í gögnum málsins kemur fram að ungi maðurinn hafi tjáð lögreglu að sálfræðingurinn hefði nauðgað honum alls þrisvar, á sennilega þriggja mánaða tímabili og alltaf á skrifstofu skólasálfræðingsins. Í lok sálfræðitíma hafi hann hrósað honum og gefið honum kók og prins póló. Kærandinn segir að sálfræðingurinn hafi sagt að þetta ætti að vera þeirra leyndarmál. Einnig að ef hann segði frá myndi enginn trúa honum og hann yrði bara lagður inn á geðdeild. Íhugaði oft sjálfvíg Ungi maðurinn lýsti því í samtali við Vísi í fyrra hvernig honum hafi fundist hann deyja að innan í þessum tímum. Hann hafi skammast sín og fundist hann eiga þetta skilið þar sem hann hafi ekki reynt að streitast á móti. Eftir þetta hafi hann oft íhugað sjálfsvíg. Hann hefur síðan þá leitað til fjölda sálfræðinga og einnig fengið aðstoð frá Stígamótum. Segir hann þetta hafa haft áhrif á sjálfsmynd, kynlíf, samskipti hans og traust til annarra. Hann hafi aldrei verið í sambandi, ekki fundist hann sjálfur þess virði. Sálfræðingurinn hefur alla tíð neitað sök og gerði enn þegar Vísir hafði samband við hann árið 2018. Ungi maðurinn hringdi nokkur símtöl til sálfræðingsins í aðdraganda þess að hann lagði fram kæruna. Sálfræðingurinn tilkynnti þau til lögreglu og sagði unga manninn í ójafnvægi. Ungi maðurinn tjáði Vísi að hann hefði hringt í manninn uppfullur af reiði eftir kynferðisbrotin. Konum ekki sagt óhætt í ráðgjöf hjá honum Sálfræðingurinn sendi tölvupóst á starfsmenn sveitafélagsins sem hann starfaði hjá árið 2010. Í póstinum varaði hann við gróusögum þess efnis að konum væri ekki óhætt í ráðgjöf hjá honum þar sem hann leitaði á þær. Vísir hefur bréfið undir höndum en það er frá lokum sumars 2010. Þar segir sálfræðingurinn meðal annars að einstaklingur hafi sent fólkinu í kringum hann tölvupósta og SMS með ljótum sögum og einnig rætt það í eigin persónu við einhverja aðila. Í póstinum segir sálfræðingurinn söguna vera fjarstæðu. Aðili sem starfaði með manninum á sínum tíma tjáði Vísi að flestir hefðu talið að gróusögurnar sneru að því hve kvensamur sálfræðingurinn væri. Breytt ráðningarferli hjá velferðarsviði Sálfræðingurinn starfaði á deild hjá Reykjavíkurborg sem sá meðal annars um ráðgjöf til leik- og grunnskóla. Eftir að sálfræðingurinn var sendur í leyfi frá störfum sínum hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar árið 2018 var gerð ítarleg athugun á verkefnum sálfræðingsins til að tryggja að hann hefði ekki farið út fyrir starfsskyldur sínar og verið einn með börnum. Sálfræðingurinn upplýsti ekki um að hafa verið kærður fyrir kynferðisbrot þegar hann réð sig til velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.vísir/vilhelm „Niðurstaða athugunarinnar var að í einu tilviki hafi viðkomandi verið einn með barni í fimmtán mínútna viðtali. Samkvæmt upplýsingum frá yfirmanni hafa engar athugasemdir né kvartanir borist um störf mannsins hjá velferðarsviði en rétt er að geta þess að hann gegndi því starfi sem hann var ráðinn til einungis í fjóra mánuði,“ sagði í yfirlýsingu frá Reykjavíkurborg. Í framhaldinu var gerð breyting á ráðningarferli á velferðarsviði þar sem ákveðið var að óska eftir upplýsingum úr sakaskrá hjá þeim sem starfa á heimilum og dagþjónustu fyrir fatlað fólk eða í úrræðum á vegum Barnaverndar og þeim sem starfa við stuðningsþjónustu. Áður hafði verið gerð krafa um hreint sakavottorð. Í sextán mánuði, á meðan málið var til rannsóknar og til meðferðar hjá dómstólum, var hann á fullum launum hjá Reykjavíkurborg - allt þar til dómur féll sumarið 2019.
Dómsmál Reykjavík Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Fleiri fréttir Fagna „heimkomu“ Baldurs eftir margra vikna fjarveru Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Sjá meira